Domusnova fasteignasala kynnir í sölu:
Eign fyrir vandláta á einstökum stað. Eignarlóð úr landi Bjarnastaða í Grímsnes- og Grafningshreppi 2.71 ha stórkostleg fjallasýn.
Svæðið: Náttúrufegurð í víðsýnum fjallasal þar sem golfvöllur og veiði er í næsta nágrenni og stutt er í alla þjónustu.
Lóðin er á skipulögðu frístundabyggðasvæði. Rafmagn, heitt og kalt vatn er á lóðamörkum.
Samkvæmt byggingaskilmálum er heimilt að reisa allt að 250 fm sumarhús og 25 fm aukahús á lóðinni. Gerð hefur verið teikning af glæsilegu 105 fm sumarhúsi sem getur fylgt með.
Nánari upplýsingar veita: Helgi Þórhallsson nemi í löggildingu s:895 1999 og Einar Hannesson löggiltur fasteignasali [email protected]