Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Kórsalir 1 , 201 Kópavogur
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
110 m2
84.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2001
Brunabótamat
61.220.000
Fasteignamat
84.100.000

Domusnova og Bergþóra Lárusd.lgf. kynna bjarta og vel skipulagða 110,6 fm. fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu í snyrtilegu fjölbýli við Kórsali 1 í Kópavogi. Þvottahús er innan íbúðar og sérgeymsla í sameign. 
Eignin er skráð 4ra. herbergja (3 svefn.), á teikningu er hún 3ja. herbergja (2svefn.). Búið er að bæta við 
þriðja svefnherberginu á kostnað stofu.

                                                          ***BÓKIÐ SKOÐUN***
                                          ***EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR***


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús , 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Einnig fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing:

Forstofa: Rúmgóður fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg upprunaleg innrétting og gott skápapláss.
Stofa og borðstofa: Stofan er björt og með útgengi á góðar svalir sem snúa í suðvestur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I (hjónah.): Rúmgóður fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Fataskápur og parket á gólfi.
Baðherbergi:  Ljós innrétting, baðkar, sturta og salerni. Ljósar flísar á gólfi og veggjum,
Þvottahús: Er innan íbúðar með tengi  fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur, ljósar hillur og ljósar flísar á gólfi.
Geymsla: Sér geymsla (7,6 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: Eigninni fylgir sér stæði í bílageymslu.
Sameign: Rúmgóð hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

- Húsið hefur fengið gott viðhald Það var sílanborið árið 2022 og var einnig skipt um glugga og gler þar sem þurfti og þak málað.
- Lóð er rúmgóð og snyrtileg og leiksvæði fyrir börnin.

Um er að ræða góða og vel staðsetta eign þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.