Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Kirkjubraut 2 , 300 Akranes
79.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
6 herb.
159 m2
79.700.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1956
Brunabótamat
77.350.000
Fasteignamat
62.100.000

Domusnova og Hallgrímur Tómasson lögfræðingur og löggiltur fasteignasali kynna:
Mjög glæsileg og rúmgóð 159 fm sérhæð á þriðju hæð í vel staðsettu húsi við Akratorg. Um er að ræða sérlega fallega endurnýjaða eign þar sem smekklegar innréttingar og vönduð tæki setja glæsilegan svip á alla hönnun. Útsýnið er einstaklega eftirsóknarvert og nær í allar áttir.
Nánari lýsing: 
Eldhús var endurnýjað á árunum 2020–2022 með smekklegri innréttingu og flísalögðu gólfi. Í því er innbyggð Miele uppþvottavél, tvöfaldur amerískur ísskápur og örbylgjuofn sem fylgir eigninni. 
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum sem veita einstakt útsýni yfir Akratorg og höfnina. Nýtt parket var lagt árið 2020 og hluti veggja hefur verið hljóðeinangraður með innbyggðum skáp sem fellur vel að hönnun rýmisins.
Svefnherbergisgangur og sjónvarpshol eru með parketi lagt árið 2020. Útgengi er út á svalir þar sem opnast stórfenglegt útsýni yfir Akrafjall, Faxaflóa og Langasand.
Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi og var nýtt parket lagt í þau öll árið 2023. Hjónaherbergið er með sér fataherbergi sem er vel skipulagt með innbyggðum skápum og skúffum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á árunum 2020–2022 og er það sérlega vandað í alla staði. Þar má finna fágaðar innréttingar, sjónsteypta og múraða veggi, náttúrusteinflísar á gólfi og hluta veggja, frístandandi baðkar, handlaugar og vönduð blöndunartæki.
Þvottahús er í sér herbergi með glugga og hurð. Gólfefni og innréttingar voru endurnýjuð árið 2022, með flísalögðu gólfi og vinnuborði með vaski og blöndunartæki. Ný tengi fyrir þvottavél og þurrkara eru til staðar og gert er ráð fyrir sturtu með tengingum í vegg.
Annað:
Allar innihurðir eru hvítlakkaðar og úr eik. Rafmagn í íbúðinni var endurnýjað árið 2022 og settar upp Shelly snjalllausnir, ásamt hágæða tenglum og rofum frá Jung um alla íbúð. Nýjar kastarabrautir og lýsing eru til staðar og geta fylgt með í kaupunum.
Mynddyrasími tengdur snjallsíma og öryggiskerfum fylgir eigninni. Flestir gluggar og gler hafa verið endurnýjuð, að undanskildum þremur gluggum, en gler í þá fylgir og er geymt í geymslu.

Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu á jarðhæð. Sameign hússins hefur verið tekin í gegn á undanförnum árum, m.a. múrviðgerðir og málun í porti og á stigapalli árið 2024. Nýjar hurðir hafa verið settar á svalir og í stigagang, auk þess sem rafmagn og lýsing í sameign hafa verið endurnýjuð. Neysluvatnslagnir í húsinu hafa að verulegu leyti verið endurnýjaðar. Húsið er búið varmaskipti og þak var yfirfarið árið 2016, þar sem settar voru upp túður til að bæta loftun.

Lóð hússins og aðkoma er vöktuð með vönduðu öryggismyndavélakerfi sem nær yfir bílastæði, stigapall og innganga. Íbúðinni fylgir einnig hlutdeild í eignarlóð samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu, ásamt aðgangi að sameiginlegri hjólageymslu á jarðhæð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.