Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Eyrarvegur 20 , 350 Grundarfjörður
45.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
168 m2
45.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1955
Brunabótamat
75.050.000
Fasteignamat
39.300.000

Domusnova Borgarnesi kynnir í sölu Eyrarveg 20, 350 Grundarfirði, fjölskylduvænt fjögurra herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr og skjólsömum garði, staðsett miðsvæðis í Grundarfirði. Eignin nýtur glæsilegs útsýnis yfir fjörðinn og Kirkjufellið.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf. // s. 691-4591 // [email protected]

Eyrarvegur 20 er 168,1 fm steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum, þar af 130,3 fm íbúðarrými og 38,5 fm stakstæður bílskúr. Húsið er klætt bárujárni að utan. Innra skipulagi eignarinnar hefur verið breytt frá upphaflegri teikningu, árið 1996 var húsið stækkað með viðbyggingu og settur nýr stigi milli hæða. Aðalinngangur sem áður var um útitröppur á efri hæð var færður og er nú á neðri hæð. Íbúðarrými eignar er 130,3 fm., á neðri hæð er forstofa, gangur, herbergi, hol og þvottahús. Á efri hæðinni er gangur, tvö herbergi, baðherbergi, eldhús og stofa þaðan sem útgengt er á timburverönd í gróin og snyrtilegan bakgarð. Stigi milli hæða er í forstofu.

Lýsing eignar:
Neðri hæð - 50,3 fm.
Forstofa: Fatahengi. Flísar á gólfi. Góflhiti. 
Herbergi I: Parket á gólfi.  
Hol: Flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla: Gengið í gegnum hol í þvottahús. Mjög rúmgott rými með hillum og vinnuborði. Lakkað gólf.
Stigi: Stálstigi með tréþrepum. 

Efri hæð - 80,0 fm.
Gangur: Dökkar náttúrusteinflísar á gólfi.
Eldhús: Hvítlökkuð innrétting með efri og neðri skápum. Mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða. Innbyggð uppþvottavél. Borðkrókur. Dökkar náttúrusteinflísar á gólfi
Herbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III: Fataskápur. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Viðarinnréttingu með dökkri borðplötu og speglaskáp fyrir ofan. Uphengt salerni. Baðkar með sturtu. Handklæðaofn. Flísar á veggjum og gólfi. 
Stofa: Útgengi út á timburverönd og í bakgarð. Dökkar náttúrusteinflísar á gólfi.
Geymsluloft: Manngengt að hluta. 

Bílskúr: 38,5 fm. stakstæður bílskúr, (byggingarár 2007) með hita, rafmagni og rennandi vatni. Rafknúin bílskúrshurð með fjarstýringu. Möguleiki á geymslulofti. Lakkað gólf.
Lóð og garður: Lóðin er 594,0 fm. með góðri aðkomu og nægum bílastæðum. Bakgarður er afar skjólsamur, með timburverönd, skjólveggjum og steyptri stétt milli bílskúrs og húss, runnar og plöntur ásamt lýsingu í garði. 

 
Mjög vel staðsett einbýlishús með einstakt útsýni yfir fjörðinn og kirkjufell. Stutt í alla helstu þjónustu.  


Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s. 691 4591 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.