Domusnova fasteignasala og Andri H. Agnarsson lgf. kynna til sölu mjög fallegt og vandað parhús með mikilli og veglegri lofthæð. Húsið er á tveimur hæðum með bílskúr innarlega í botnlanga. Húsið er skráð samkvæmt HMS 165,8m2. Íbúðarhlutinn er 142,3m2 og bílskúrinn 23,5m2. Hluti efri hæðar er undir súð og því heildarfermetrar eitthvað fleiri en uppgefnir. *Bílskúr
*Pallur/verönd og garður
*Arinn í stofu
*Sér þvottahús
Lýsing eignar:
Aðkoma: Húsið er
innarlega í rólegum botnlanga. Fyrir framan húsið má með
góðu móti leggja þremur bílum. Einnig rúmgott svæði fyrir setuaðstöðu fyrir framan hús.
Forstofa: Flísalögð forstofa með
fallegum dökkum náttúru steinflísum og góðu skápaplássi. Þvottahús: Innaf forstofu er gengið inn í þvottahús. Þar er
stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Fínt vinnupláss og góð innrétting. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Mjög
vönduð innrétting. Mikið skápa og borðpláss. Granítplötur á borðum. Innfelld uppþottavél og ísskápur ásamt bakaraofni í vinnuhæð. Borðkrókur er í eldhúsinu.
Háfur yfir eyju. Stórir gluggar og flísar á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting með ágætis geymsluplássi.
Granítplata á borði. Baðkar og sér sturtuklefi. Handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfi og
opnanlegur gluggi. Stofa/borðstofa: Alrýmið er
einstaklega fallegt með mjög mikilli lofthæð. Á gólfum er parket og náttúru steinflísar á gólfi.
Arinn með íslensku grágrýti í eldhólfi og á syllu. Stórir gluggar á alrýminu gefa fallega sýn. Útgengt frá stofu út á
verönd/garð. Svefnherbergi I: Á neðri hæðinni er hjónaherbergið. Það er parketlagt með góðum fataskáp
.
Svefnherbergi II: Búið er að
breyta alrýminu og nýtist þetta svefnherbergi sem hluti af alrýminu í dag.
Þessu rými væri hægt að breyta aftur í svefnherbergi.Svefnherbergi III: Þetta herbergi er á
efri hæðinni. Rúmgott herbergi. Parket á gólfi. Mikið
útsýni til norðurs. Í herberginu er
gott geymslurými undir súð sem er lokað af.
Efri hæð: Nýtist í dag sem
sjónvarpsrými, vinnuaðstaða og svefnherbergi. Undir súð er
gott geymslurými.Bílskúr: Mjög snyrtilegur.
Heitt og kalt vatn. Opnanlegur gluggi. Rafmagnsopnari á bílskúrshurð. Gott geymsluloft. **Innréttingar voru hannaðar af Önnu Pálu Pálsdóttur arkitekt og smíðaðar af Brúnás. Gólfefni í húsinu eru gegnheilt parket og dökkar náttúru steinflísar. Allir sólbekkir eru úr fallegu blágrýti. Innfelld lýsing með ljósdeyfi (dimmer) í öllu húsinu. Mikil og vegleg lofthæð.
**Að sögn seljanda var húsið, þakkantur og gluggar allt málað fyrir um tveimur árum síðan. Nánari upplýsingar veita:Andri Hrafn Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.698-2127 / [email protected]Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.