Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Grandavegur (0006) 47 , 107 Reykjavík (Vesturbær)
98.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
118 m2
98.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1989
Brunabótamat
36.900.000
Fasteignamat
33.300.000

***DOMUSNOVA KYNNIR * NÝ ÍBÚÐ Í VÖNDUÐU FJÖLBÝLI***
***60 ÁRA OG ELDRI***


SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAX

Grandavegur 47, jarðhæð með stórri suðurverönd og skjölvegg.
Íbúðin er öll endurnýjuð að innan á mjög vandaðan hátt.
Birt stærð íbúðar er 118,6fm., þar af geymsla 4,3fm.

Nánari upplýsingar veita:
Vera löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]

NÁNARI LÝSING:
Anddyri
 12,2fm., er mjög rúmgott með góðum fataskápum sem ná upp í loft
Eldhús er með góðri eyju og  glugga í opnu rými við borðstofu.  Innrétting frá Brúnás.  Vönduð ný tæki af gerðinni Siemens frá Smith og Norland í eldhúsi
Borðstofa í björtu og opnu rými við eldhúsið
Stofa innaf borðstofu með svalahurð út á stóran nýjan sólpall með góðri verönd
Hjónaherbergi 13,7fm. rúmgott með vönduðum fataskápum frá Brúnás sem ná til lofts
Svefnherbergi #2 rúmgott 13,1fm.með fataskáp uppí loft
Þvottaherbergi innaf svefnherbergisgangi
Baðherbergi innaf svefnherbergisgangi með innréttingu frá Brúnás, upphengt salerni og sturtuklefa.  Gluggi á baðherbergi
Geymsla innan íbúðar.
Hvíldar- og líkamsræktarsalur á hæðinni, með gufubaði, heitum potti og kynjaskiptum klefum með sturtum og skápum. 
Veislusalur á efstu hæð hússins sem nýtist m.a. fyrir íbúa hússins.

Frábær staðsetning á eftirsóttum stað.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.