Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Ásakór 3 , 203 Kópavogur
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
101 m2
79.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
53.550.000
Fasteignamat
72.250.000

DOMUSNOVA OG VERA KYNNA, SJARMERANDI ÞRIGGJA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Í GÓÐU FJÖLBÝLI MEÐ LYFTU VIÐ ÁSAKÓR 3, 203 KÓPAVOGUR.
EIGNIN ER UM 102 M2, RÚMGOTT ALRÝMI MEÐ GLÆSILEGU ÚTSÝNI, ÞVOTTAHÚS INNAN EIGNAR.

ALLARU UPPLÝSINGAR
Vera Sigurðardóttir lgf. í síma: 8661110 eða netfang: [email protected]

Eignin var að mestu endurnýjuð að innan 2023


- Eldra gólfefni fjarlægt í allri íbúðinni (að undanskildu baðherbergi)
- Harðparket frá Quick-Step lagt samfelldan flöt um alla íbúðina (utan baðherbergis)
- Gegnheilar flísar frá Parka í forstofu og þvottaherbergi
- Nýir gólflistar

- Ný eldhúsinnrétting
- Sérsmíðaðir frontar frá Innval
- Borðplötur frá Fanntófell
- Undirlímdur vaskur frá Hansgrohe
- Blöndunartæki frá Omnires
- Lýsing í skúffum
- Undirskápalýsing frá Philips Hue
- Helluborð frá Witt
- Ofn Studio Line frá Siemens
- Innbyggður ísskápur frá Samsung

- Nýjir dimmerar í öllum rýmum (að undanskildu þvottaherbergi)
- Rammar og vippur frá Gira endurnýjaðar
- Mikið af tenglum og rofum endurnýjaðir.

- Allar innihurðir sprautaðar hvítar
- Nýjar hurðarhöldur frá Birgisson
- Fataskápar lakkaðir og höldur pólýhúðaðar
- Loft pússað niður (áður hraunað), spasslað og málað

Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skáp.
Eldhús/stofa/borðstofa: Mjög björt með gluggum á 2 hliðum, nýleg eldhúsinnréttin og tæki, nýlegt harðparket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar suðvestursvalir.
Hjónaherbergi: Með nýlega lökkuðum skápum og nýlegu harðparketi á gólfi.
Herbergi : Með nýlega lökkuðum skáp, nýlegt harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með innréttingu og baðkar með sturtu.
Þvottahús:  Innan íbúðar.
Geymsla: Sér geymsla í sameign.
Mjög sjarmerandi íbúð á barnvænum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.