Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Strandvegur 15 , 210 Garðabær
106.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
119 m2
106.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
69.700.000
Fasteignamat
106.500.000

DOMUSNOVA FASTEIGNASALA OG BERGÞÓRA LÁRUSDÓTTIR LGF. KYNNA TIL SÖLU FALLEGA OG VEL STAÐSETTA 119 FM. 4RA HERB. ÍBÚÐ Á 3.HÆÐ MEÐ LYFTU OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU VIÐ STRANDVEG 15 Í GARÐABÆ.
- GLÆSILEGT SJÁVARÚTSÝNI!
- ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR
- EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING

***BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 8953868 EÐA Á NETFANGIÐ [email protected]***

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 2-3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing.

Forstofa: Með góðum fataskáp.
Eldhús: Er með ljósri innréttingu og nýlegu spanhelluborði. Eldhús er í opnu rými með stofu/borðstofu.
Stofa/borðstofa: Er opin og björt með stórum gluggum og glæsilegu sjávarútsýni. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar vestursvalir.
Herbergi I : Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og fataherbergi.
Herbergi II : Barnaherbergi er með hillum og fataslá. 
Herbergi III : Var stúkað af með glervegg, búið að fjarlægja vegginn og stækka stofuna, lítið mál að breyta rýminu í 3ja herbergið.
Baðherbergi : Með sturtu, ljósri innréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús : Er innan íbúðar með ljósri innréttingu og snúrum.
Bílageymsla: Sér stæði er í upphitaðri bílageymslu merkt B11.
Geymsla: 7,3 fm. sér geymsla er í kjallara.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Gólfefni íbúðar: Nýlegt harðparket á alrými og herbergjum og flísar á votrýmum.

Um er að ræða einstaklega vel staðsetta eign við sjávarsíðuna í Sjálandi með stórkostlegu útsýni og góðum göngu- og hjólastígum. Örstutt í leik- og grunnskóla. Einnig er framhaldsskóli, sundlaug, íþróttahús, verslun og öll helsta þjónusta innan seilingar.


Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.