Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Sóltún 18 , 105 Reykjavík (Austurbær)
89.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
101 m2
89.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
63.800.000
Fasteignamat
88.600.000

NADIA KATRÍN OG DOMUSNOVA KYNNA: OPIÐ HÚS 20.JANÚAR KL.17.15-17.45. TVÖ SVEFNHERBERGI, TVENNAR SVALIR, OPIN STOFA OG ELDHÚS, ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR, LYFTA, STÆÐI Í BÍLAKJALLARA
Lýsing eignar:
Falleg og vel skipulögð 101,3fm þriggja herbergja íbúð í vönduðu lyftuhúsi. Komið er inn í flísalagða forstofu með góðu skápaplássi.  Inn af forstofu er opið eldhús og rúmgóð stofa og borðstofa. Útgengi er út á skjólgóðar svalir úr stofu. Eldhúsið er með vandaðri viðar innréttingu og stál borðplötum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með viðarinnréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Stærra herbergið er mjög rúmgott með miklu skápaplássi. Úr minna herberginu er gengið út á svalir með svalalokun. Gott þvottahús er innan íbúðar með miklu skápaplássi og skolvask. Gólfhitastýringar í íbúðinni voru endurnýjaðar 2020.  Mjög rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni í sameign og þar er  einnig vagna og hjólageymsla. Sérmerkt bílastæði  fylgir eigninni í bílakjallara. Falleg og vönduð eign á vinsælum stað í borginni.



Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.692 5002 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.