Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Jörundarholt 39 , 300 Akranes
124.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á pöllum
8 herb.
277 m2
124.900.000 Kr.
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1983
Brunabótamat
119.650.000
Fasteignamat
122.650.000

Stefán sími 8969303 og domusnova kynna Jörundarholt 39. Um er að ræða alls 277,8 fm einbýlishús á fjórum pöllum, þar af er bílskúr 71,2 fm.
Húsið er byggt í rólegum botlanga, útsýni er mikið og fallegt. Húsið var tekið í notkun árið 1990. Innréttingar  voru á sínum tíma sérsmíðaðar af Eldhúsval. Stærð lóðar er 860 fm.

Pantaðu skoðun á [email protected]

Nánari lýsing 
Anddyri er með góðum fataskáp og flísum á gólfi, gengið inn í gestasalerni og forstofuherbergi, einnig er innangengt inn í bílskúr úr anddyri. 
Eldhús er með góðri innréttingu og borðkrók, útgengt á sólpall. Úr eldhúsi er gengið upp nokkrar tröppur og við tekur afrar rúmgóð stofa/borðstofa. Útgengt er úr stofu á sólpall einnig er mikið og gott útsýni úr stórum stofuglugga í átt að Akrafjalli og víðar.
Efsti pallur herbergisálma 
Rúmgott Hjónaherbergi er staðsett eitt og sér framan við herbergisgang, stórir og miklir skápar auk þess er snytiborð.
Á herbergisgang eru þrjú svefnherbergi og aðalbaðherbergi. Dúkur er á gólfum herbergja.
Aðalbaðherbergi var endurbætt árið 2020 flísar á gólfi og veggjum,gólfhiti, innrétting og sturtuklefi. Gengið er út á c.a 50 fm sólpall frá herbergisálmu. Rými þetta er staðsett ofan á bílskúr og býður upp á marga möguleika, afgirt með timbur skjólveggjum. 
Neðsti pallur gengið niður úr eldhúsi. Við tekur rými sem býður upp á ýmsa möguleika einnig er eitt herbergi.

Bílskúr 71,2 fm 
Innangengt úr anndyri, tvær stórar flekahurðir (ekki með fjarstýrðum opnara). Þvottahús sem að er með sturtuklefa og salerni,  útgönguhurð bak við hús. Snjóbræðsla í hellulögðu bílaplani.

Annað 
Samkvæmt gögnum fasteignamats ríkisins er hús skráð sem timburhús en að að stæðstum hluta staðsteypt og svo timbur.
Örstutt í fallegar göngileiðir sem og Golfvöllinn Garðavöllum.  Leik og grunnskóli er einnig staðsettur skammt frá. 

Helstu endurbætur árið 2025/2026
Skipt um glugga, gler og hurðir í húsinu að mestu leyti..
Skipt um járn á þaki yfir andyri og bílskur að framanverðu.
Hús sprunguviðgert eftir þörfum 
Hús málað að innan að stórum hluta.
Aðalbaðherbergi enurbætt árið 2020.
Neysluvatnslagnir að stæðstum hluta 2022.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.