Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Vallakór 2 , 203 Kópavogur
76.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
93 m2
76.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2014
Brunabótamat
58.500.000
Fasteignamat
72.750.000


DOMUSNOVA OG VERA KYNNA, ÞRIGGJA HERBERGJA 93 M2 ENDA ÍBÚÐ MEÐ STÆÐI Í BÍLSKÝLI.
ÍBÚÐIN ER Á 2. OG EFSTU HÆÐ Í FALLEGU LYFTUHÚSI VIÐ VALLAKÓR 2A 203 KÓPAVOGUR.
ÍBÚÐIN ER MEÐ 23 M2 SVÖLUM TIL SUÐVESTURS EKKI Í FERMETRATÖLU SEM VÆRI HÆGT AÐ NÝTA BETUR OG SETJA HITA.
GLUGGAR Á 2 VEGU ER ÞVÍ MJÖG BJÖRT, ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR, 2 RÚMGÓÐ SVEFNHERBERGI OG 18 2M GEYMSLA MEÐ GLUGGA MÖGULEIKI VÆRI AÐ NÝTA HANA SEM VINNUSTOFU.

2020-2021 
Húsið var sprunguviðgert og málað samkvæmt ástandsskýrslu frá VSB Verkfræðistofu.
2025-2026
Viðgerðir á hluta þaks verður klárað núna á vormánuðum samkvæmt ástandsskýrslu frá VSB Verkfræðistofu og eru þá allar framkvæmdir búnar og búið að greiða fyrir allt samkvæmt þessari skýrslu.


ALLARU UPPLÝSINGAR
Vera Sigurðardóttir lgf. í síma: 8661110 eða netfang: [email protected]


Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og rúmgóðum skáp.
Eldhús: Opið rými með snyrtilegri eldhúsinnréttingu, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Mjög björt með gluggum á 2 vegu útgengt út á 23 m2 yfirbyggðar svalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Með skápum og parketi á gólfi.
Herbergi 2: Með skáp, parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með snyrtilegri innréttingu, sturtu, flísar í hólf og gólf.
Þvottahús: Innan íbúðar flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurkara, vaskur og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Sér geymsla í sameign 18 m2 með harðparketi á gólfi. Möguleiki á að nýta sem vinnuaðstöðu, líkamsræktina eða bara hvað sem er opnanlegur gluggi er á geymslunni.
Bílakjallari: Sér stæði í læstu bílskýli.
Dekkjageymsla: Sameiginleg stór geymsla fyrir dekkin.
Hjóla og vagnageymsla: Sameiginleg í sameign.
Mjög sjarmerandi og björt íbúð í Kópavogi.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.