Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: LÆKJARSEL EIGN 101, ENDA BIL.** ENGIN VSK Kvöð ** Lækjarsel er sérlega vönduð og snjöll lausn í fasteignum fyrir þá sem vilja sitt eigið pláss í fyrirmyndar umhverfi Grænna iðngarða. Hér færðu hentugt rými fyrir hjólhýsið, vélsleðann, mótorhjólið, fjölskyldufyrirtækið, hobbíið, lagerinn eða jafnvel bara fyrir allt ómetanlega dótið þitt sem þú kemur ekki fyrir heima.
Húsið allt er samtals 495,3 fm á einni hæð byggt upp með burðarvirki úr Smellinn forsteyptum samlokueiningum og límtré. Innan byggingar eru 12 séreignarrými og eitt inntaksrými sem er að auki með sameiginlegri snyrtingu/salerni.
Húsið er hannað og teiknað af Al-hönnun en sérstaklega var lagt upp með að byggingin myndi samræmast fallegri og snyrtilegri sýn Grænna iðngarða með gæða efnisvali og góðum lausnum. Öll hönnun Lækjarsels miðar að snjalllausnum.Enda bil 101 Millibil. Iðnaður/Geymsla.
41,6 fm salur.
Innkeyrsluhurð 2,7 m x 2,9 m með rafmagnsopnun.
Lofthæð 3.7 m undir hæsta punkt
Milliloft c.a. 15 fm
Snyrting, wc og vaskur.
Öll bílastæði og aksturlína meðfram lóðarmörkum verður malbikuð. Snjóbræðsla verður fyrir framan hurðar.
Lóðarstærð 1608,8 fm
Sameiginlegt inntaksrými sem er með sameiginlegri snyrtingu
Lóðin er girt af og komið fyrir rafmagnshliði á láréttri braut auk gönguhliðs.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.