TIL LEIGU: FRÓÐENGI 18 --- Íbúðin er laus frá 1.apríl 2026 ---- FRÁBÆR STAÐSETNING ----
Snyrtilega tölvert endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli við Fróðengi 18 í Grafarvogi.
Verönd út af stofu (sérnotareitur) sem snýr í suður. Geymsla innan íbúðar. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald síðustu ár.
Sérmerkt bílastæði á lóð. Örstutt í flest alla þjónustu í Spöngina. Stutt í skóla, leikskóla og Borgarholtsskóla. Leiguverðið er 250.000.- kr á mánuði. Hiti, rafmagn og hússjóður er innifalið í leiguverðinu.Krafa er um 2ja-3ja mánaða tryggingu. Óskað er eftir meðmælum frá fyrri leigusala ef það á við.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á netfang: [email protected] Eignin er alls skráð 53,4 m² skv. Þjóðskrá Íslands.
Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, eldhúsrými, stofu og herbergi ásamt geymslu innan íbúðar.
Nánari lýsing:Anddyri – Með hurð inn í íbúð og harðparket á gólfi. Baðherbegi er inn af anddyri.
Baðherbergi – Með ljósum flísum á gólfi og veggjum. Sturtuklefi er flísalagður og með hengi við sturtu. Hvít baðinnrétting og salerni á gólfi. Rými fyrir þvottavél á baðherbergi.
Eldhús – Nýleg Ikea eldhúsinnrétting frá 2019 með efri skápum og flísaþiljum milli efri og neðri skápa. Ofn, spanhelluborð og vifta ofan við helluborð.
Stofa – Gott opið og bjart stofurými með útgengi á verönd í suður. Harðparket á gólfi.
Geymsal - Á hægri hönd inn af anddyri er herbegisgangur þar sem er geymsla
og hjónaherbergi.
Hjónaherbergi – Rúmgott með nýlegum fataskáp frá 2019 og harðparketi á gólfi.
Gólfefni og innréttingar:
Innihurðar eru nýlegar frá 2019 yfirfelldar úr melamin í viðarlit. Gólfefni er harðparket á öllum rýmum að undaskildu baðherbergi þar eru flísar.
Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Nánasta umhverfi: Örstutt í Borgarholtsskóla, Stutt í skóla og leikskóla og verslanir Bónus og Hagkaup ofl verslanir í Spönginni.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á netfang: [email protected]