Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Langalína 15 , 210 Garðabær
76.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
83 m2
76.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2013
Brunabótamat
45.050.000
Fasteignamat
73.900.000
Opið hús: 22. mars 2026 kl. 16:30 til 17:00.

Opið hús: Langalína 15, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 201. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. mars 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir. lgf. kynna sérlega fallega og rúmgóða 83 fm. 2ja herbergja í búð á 2. hæð í lyftuhúsi  við Löngulínu 15 í Sjálandshverfi í Garðabæ. Húsið hefur fengið gott viðhald og næg bílastæði eru við húsið. 

Eignin skiptist í forstofu , stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:

Forstofa: með ljósum fataskáp.
Eldhús: með ljósri innréttingu og vönduðum tækjum, ofn í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: eru í opnu björtu rými með eldhúsi. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi: er með rúmgóðum innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi: er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt hólf í gólf.
Geymsla: 7,4 fm. sér geymsla er í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Gólfefni: harðparket á alrými og flísar á baðherbergi.
Allar innréttingar eru frá Brúnás

- Hiti í stétt fyrir framan húsið
- Byggingaraðili húsins er Bygg, (byggingarfélag Gylfa og Gunnars).

Frábær staðsetning við sjávarsíðuna þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og leik- og grunnskóli eru í göngufæri. 

Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.