Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Leynisbraut 8 , 300 Akranes
110.000.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
167 m2
110.000.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1999
Brunabótamat
89.550.000
Fasteignamat
95.250.000

Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:
Endaraðhús, Leynisbraut 8, Akranesi.      SKIPTI MÖGULEG Á MINNI EIGN.


Viðhaldslétt, staðsteypt og steinað  136,5 fm hús með 31,4 fm bílgeymslu, byggt 1999, tekið í notkun 2003
Húsið er vel skipulagt og því hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin.

Lýsing eignar:

Forstofa með skápum, flísar á gólfi, gólfhitalögn. 
Hol, borðstofa, eldhús og stofa með flísum á gólfi.
Dyr úr stofu út á sólpall með heitum potti  
Sjónvarpshol parketlagt.
3 svefnherbergi, skápar í öllum. Parket á herbergjum og svefnherbergisgangi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, góð innrétting, sturta, gólfhitalögn.
Eldhús, góð innrétting, flísar milli skápa, veggofn, keramikhelluborð, innfelldur ísskápur fylgir. 
Innangengt í bílskúr í gegnum þvottaherbergi.
Þvottaherbergi með skápum og flísum á gólfi. 
Bílskúr  (31,4 fm) með flísum á gólfi og uppá hálfa veggi,  skápar, geymsluloft. Fjarstýrður hurðaopnari .  Loftræstivifta.
Bílastæði steypt/hellulagt.  Hitalögn. 

Annað:
Gler á suðurhlið endurnýjað og þakjárn málað ca. 2021. 
Allar innréttingar og "upptekið" loft í alrými er úr ÖL.    

Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / s.846 4144 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.