Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Fitjahlíð 33 , 311 Borgarnes
87.000.000 Kr.
Sumarhús
6 herb.
123 m2
87.000.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
55.270.000
Fasteignamat
63.700.000

Domusnova og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Sannkallað höfðingjasetur á skógi vaxinni lóð í Fitjahlíð Skorradal. Skorradalurinn er rómaður fyrir veðursæld sumar, vetur, vor og haust. Húsið er frábært fjölskylduhús byggt af kostgæfni. Fagurt útsýni yfir vatnið frá húsi sem var byggt 2016, þar sem áður stóð eldra hús. Húsið stendur á steyptum kjallara og er samtals 96,3 fm að stærð en til viðbótar er 11,4 fm gestahús á lóðinni. Einnig er bátaskýli niður við vatnið í eigu húss sem er ca. 16 fm (ekki í uppgefnum fermetrum) Ekki verða byggð fleiri bátaskýli við Skorradalsvatn. Rafmagnskynding er í húsinu en tveir 400 lítra kútar ásamt einum 200 lítra duga vel fyrir heitum potti á palli og fyrir neysluvatn.

Fitjaland er fyrsta sumarhúsabyggðin í Skorradal og umhverfi þess tekur mið af því. Sumarhús eru ýmist fyrir ofan veg eða neðan. Fitjahlíð  er fyrir ofan veg við vatnið. Bílastæði eru í vegakannti og góður göngustígur upp að húsinu.
 

Aðahúsið er á tveimur hæðum,
Neðri hæð er steyptur kjallari með flísum á gólfi en um er að ræða opið rými þar sem komið hefur verið fyrir eldhúsinnréttingu m. þvottavél og ísskáp, baðherbergi með sturtu. Þetta rými er skráð 31,3 fm að stærð og er alveg sér þ.e. utangengt í það. Köld nýtist sem geymsla og verkstæði með læstri hurð Kjallari
Efri hæð er með vinylparket á gólfum utan baðherbergis sem er flísalagt.  Alls eru þrjú rúmgóð svefnherbergi tvö þeirra eru með fataskápum. 
Baðherbergi með sturtuklefa, flísalagt í hólf og gólf.  Handlaug ofan á skápainnréttingu.
Eldhús og stofa í opnu alrými þaðan sem útgengt er á útsýnisverönd.  Falleg eldhúsinnrétting endurnýjuð 2021 með ofni og helluborði ásamt ísskáp. 
 
Gestahús stendur skammt frá húsi og er með harðparket á gólfi og þar er fataskápur. 
Falleg viðarverönd umvefur húsið þar sem er m.a. heitur pottur en ekki er um rafmagnspott að ræða heldur hefðbundinn og hljóðlátan hitavatnspott sem tekur inn heitt vatn frá hitakútum sem staðsettir eru í kjallara hússins.
Lóðin er eins og áður sagði skógi vaxinn, afar glæsileg með gönguleiðum m.a. lítil brú yfir lækjarsprænu.  Bátaskýli niður við vatnið.
Glæsilegt heilsárshús sem hentar vel fyrir samheldna fjölskyldu og er með góðu aðgengi allt árið um kring. 
 
Skorradalurinn er einstakur, skógivaxinn veðursæll og skjólgóður. Skorradalsvatn er um 16 km langt og um 1 km þar sem það er breiðast og spannar það mestan hluta dalsins, veiði er í vatninu.
Um klukkutíma akstur frá höfuðborgarsvæðinu, sundlaugar í nágrenni og öll þjónusta í Borgarnesi sem er um 20 mín akstur.
Ekta sumarhús fyrir fagurkera sem vilja njóta kyrrðar og náttúrunnar í rómantísku umhverfi.


Glæsilegt heilsárshús sem stendur á 2850 fm leigulandi með tryggum leigusamningi en ársleiga er um 133.000 þúsund á ári 2026
 Gott samstarf er við lóðareigendur. Vatnsveita er í eigu húseigenda.

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.