Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Borgarbraut 1-3 , 310 Borgarnes
39.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
98 m2
39.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1932
Brunabótamat
42.350.000
Fasteignamat
37.150.000
Opið hús: 28. mars 2026 kl. 14:00 til 14:30.

Opið hús: Borgarbraut 1-3, 310 Borgarnes, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. mars 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Domusnova Borgarnesi er með til sölu snyrtilega 98,7 fm. 4ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngang við Borgarbraut 1-3, 310 Borgarnesi.

***  BÓKIÐ SKOÐUN í síma 895-3868 eða á netfangið [email protected]  ***

Borgarbraut 1-3 er 4 hæða steinsteypt hús. Íbúð 203 hefur sérinngang, aðkoma fyrir aftan hús frá sameiginlegri hellulagðri verönd. Eignin er 98,7 fm. að stærð og skiptist í anddyri, miðrými/hol, stofu, eldhús m. borðkrók, þrjú herbergi, baðherbergi og geymslu. Á 1. hæð hússins er hefðbundin sameign m/hjóla- og vagnageymslu. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Fatahengi. Millihurð. Flísar á gólfi.
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum, ljós borðplata. Ný eldavél og eldhúsvifta. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með speglaskáp. Gólfsalerni. Sturtubotn með hengi. Handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél. Veggflísar hjá sturtu. Flísar á gólfi.
Herbergi I: Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III: Parket á gólfi.
Geymsla: Innan íbúðar er geymsla. Veggfastar hillur. Dúkur á gólfi.

Eignin er rúmgóð og vel skipulögð, staðsett miðsvæðis í gamla bænum þar sem m.a. er stutt í grunnskóla og íþróttasvæði. Búið er að skipta um glugga á suðurhlið f. utan einn, nýtt gólfefni í forstofu og er íbúðin nýmáluð. 

Afhending eignar getur verið við kaupsamning.
Lyklar eru á skrifstofu og hægt að bóka skoðun með stuttum fyrirvara.




Nánari upplýsingar veita:

Bergþóra Lárusdóttir, löggiltur fasteignasali / 895-3868 / [email protected]
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.