Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Höfðagrund 16 , 300 Akranes
65.400.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
79 m2
65.400.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1985
Brunabótamat
47.550.000
Fasteignamat
56.700.000

Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Gott 3ja. herb. 79.5fm ENDA-raðhús á einnihæð fyrir 60 ára og eldri. Sólpallur í suður með góðu útsýni yfir Faxaflóa.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu með útgang út á suður sólpall. Hjónaherbergi og svefnherbergi.  Baðherbergi  og þvotta aðstaða.
  • Húsið er staðsett í hverfi fyrir eldri borgara í nágrenni við Dvalarheimilið Höfða á Akranesi.
  • enda-Bílskúr 27.1 fm að Höfðagrund 8A: Verð kr. 6.600.000 getur verið keyptur með.
Lýsing eignar:
Forstofa:  Flísar á gólfi.
Innaf forstofu er geymsla/þvottahús.
Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með  fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi: Herbergi með parket á gólfi. 
Baðherbergi: Rúmgott flísalagt baðherbergi með hvitri innréttingu og skápum með "walk in" sturtu. Tengi fyrir þvottavél inn á baðherbergi.  Panill í loftum. 
Eldhús: Parket á gólfi með hvít innrétting. hálfur veggur skilur af eldhús og stofu. Borðkrókur.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa  mynda eitt rúmgott alrými með parketi á gólfi. Útgangur út á sólpall sem snýr í suður með góðu útsýni yfir Faxaflóa. 
Gott bílaplan fyrir framan fyrir allt að 4 bíla.

Bílskúr (Höfðagrund 8A - 010103): Málað gólf, flekahurð með fjarstýrðum opnara, inngönguhurð, rafmagn.

Endurnýjað:
  • 2019 Suðurverönd og gluggi inná baðherbergi. 
  • 2021 Varmaskiptir og Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
  • 2022 Gler á suðurhlið og gluggar yfirfarnir á þeirri hlið samhliða.
  • 2023 Eldhúsinnnrétting og tæki
  • 2024 Baðherbergi. 
Húsið er háð reglugerð um sjálfseignaríbúir fyrir aldraða og öryrkja við Dvalarh. Höfða, Akranesi frá 24.01.2002.

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.