Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Leynisbraut 30 , 300 Akranes
82.800.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
120 m2
82.800.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1999
Brunabótamat
58.850.000
Fasteignamat
74.950.000

Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Leynisbraut 30 á Akranesi.

Fallegt 120,1 m parhús byggt úr timbri á steyptri plötu, með 2 svefnherbergjum, þar af 31,3  fm sambyggðum bílskúr. Húsið er staðsett í rólegri botnlangagötu skammt frá m.a golfvelli og vinsælum gönguleiðum.   Hellulögð stétt að aðalinngangi og á bílaplani.


Forstofa: flísar á gólfi, fataskápur og hengi.
Eldhús: viðarinnrétting, borðkrókur sem er opinn inn í stofu.  
Björt og rúmgóð stofa með dyrum út á stóran sólpall.  Samfelldar flísar á stofu, eldhúsi gangi og forstofu.
2 svefnherbergi, parket á gólfum, skápar í öðru
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, sturta.
Þvottahús er staðsett milli íbúðar og bílskúrs: Flísar á gólfi, vaskur, skápur og hillur.

Bílskúr: flísalagt gólf, geymsluloft, heitt og kalt vatn, hurð með rafmagnsopnara tværi göngudyr að framan og að aftan útá verönd.

 Stórt hellulagt og steypt bílastæði. Suðurverönd. ný svalahurð í stofu og göngu hurð í bílskúr. skipt um gler á suðurhlið 2025

Garðurinn er vel við haldinn og fallegur hellulagður að hluta og fánastöngin fylgir.   Þessi fallega eign er í jaðri Akranesbæjar í austur.
Fallegt og vel skipulagt parhús á þessum vinsæla og rólega stað. Örstutt í fallegar göngileiðir sem og Golfvöllinn Garðavöllum.

Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.   Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.  Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.