Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: rúmlega 55 fm sumarhús við Ártröð 14 í Svarfhólsskógi, EIGNARLÓÐEF ÞÚ ERT AÐ LEITA AÐ HÚSI , Á EIGNARLÓÐ GÓÐRI STAÐSETNINGU OG SKJÓLI .. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Hitaveita við lóðarmörk
Húsið er staðsett í Svarfhólsskógi, við landamerki lögbýlisins Svarfhóls.
Lóðin er kjarri vaxin, auk þess hafa eigendur gróðursett mikið af trjám sem mynda einstaklega gott skjól fyrir vindi næst húsinu og skyggja líka á næstu bústaði.
Bílastæði fyrir 4 bíla. Sumarhúsasvæðið er aðgangsstýrt með rafmagnshliðum beggja megin (vegur frá Vatnaskógi annarsvegar og frá Svarfhóli hinsvegar)
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er bústaðurinn skráður 55,9 fm og stendur á 9.080 fm EIGNARLÓÐ
Fasteignamat fyrir 2026 er 31.850.000,-
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi.
Kamína er í stofu. Húsið er einnig kynnt með rafmagnsofnum.
Timburhús á steyptum súlum.
Forstofa með spónarparketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru í opnu alrými með parketi á gólfi og útgengi út á sólpall.
3 herbergi þar af eitt forstofuherbergi.
Baðherbergi með sturtuklefa.
Eldhús með innréttingu, helluborði, ísskáp.
Innbú fylgir með fyrir utan persónulega muni.
Landið er aðgangsstýrt með rafmagnshliði þar sem auðvelt er að opna með fjarstýringu eða síma.
Stutt er að fara í sund í sundlauginni á Hlöðum
Svarfhólsskógur er sannkallaður sælureitur í skógivöxnu umhverfi Hvalfjarðarsveitar.Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.