Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Brákarbraut 10 , 310 Borgarnes
66.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
123 m2
66.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
65.900.000
Fasteignamat
57.550.000

Domusnova Borgarnesi kynnir í sölu Brákarbraut 10, 310 Borgarnes. Vel skipulögð og falleg 123,8 fm. 4ra herbergja horníbúð á annarri hæð með sérinngang, sérgeymslu og 11,1 fm. svölum 

**BÓKIÐ SKOÐUN hjá Sjöfn, lgf. í síma 691-4591 eða á netfangið [email protected]**

Brákarbraut 10 er fjölbýli á tveimur hæðum með 9 íbúðum, hver með sérinngang. Á 1. hæð eru 5 íbúðir ásamt hjóla- og vagngeymslu og sérgeymslum, á 2. hæð eru 4 íbúðir. Húsið er byggt árið 2007 úr forsteyptum einingum, eignin var fullgerð að utan 2015 og fokheld að innan, flutt var inn sama ár. Íbúð 202 er horníbúð á 2. hæð, 123,8 fm., þar af 7,5 fm. sérgeymsla. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, borðstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Gengið út á 11,1 fm. svalir út frá stofu. Gólfhiti. Eignin er rúmgóð og björt.

Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús: U - laga innrétting með efri og neðri skápum með góðu skápaplássi. Hvítar veggflísar á milli skápa.  Við enda borðplötu er gert ráð fyrir 3-4 háum stólum. Parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt. Útgengt á svalir. Parket á gólfi. 
Herbergi I: Stór fataskápur. Parket á gólfi. 
Herbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III: Fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Viðarinnrétting með efri skápum. Baðkar. Sturta. Upphengt salerni. Veggflísar. Flísar á gólfi. 
Þvottahús: Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Vegghillur. Flísar á gólfi. 
Svalir: Skjólsamar 11,1 fm. svalir sem vísa í suður.

Sameign: Hefðbundin sameign m/hjóla- og vagnageymslu.  
Geymsla: Íbúðinni fylgir 7,5 fm. sérgeymsla á jarðhæð. Málað gólf.

Eignin er staðsett á frábærum stað í rólegu hverfi. Margar fallegar gönguleiðir í nærumhverfinu, stutt frá grunnskóla, sundlaug og íþóttasvæði.


Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 691 4591 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.