Domusnova Borgarnesi kynnir í sölu íb. 201 að Borgarbraut 36-38, 310 Borgarnes. Björt og vel skipulögð 104,6 fm. 4ja herbergja endaíbúð á 2. hæð með sérinngang og sérgeymslu. Frábær staðsetning miðsvæðis í göngufæri við verslanir og helstu þjónustu.**BÓKIÐ SKOÐUN hjá Sjöfn, lgf. í síma 691-4591 eða á netfangið [email protected]**Borgarbraut 36-38 er 2ja hæða fjöleignarhús með kjallara undir hluta hússins, byggt árið 2005 úr forsteyptum einingum. Í húsinu eru 10 eignir, fimm á hvorri hæð. Í kjallara hússins eru sérgeymslur íbúða ásamt 67,3 fm. hjóla- og vagnageymslu. Lóðin er 1705,0 fm og liggur austan Borgarbrautar og sunnan Böðvarsgötu. Sameiginlegt leiksvæði fyrir aftan hús þar sem er sandkassi, rennibraut og fleiri leiktæki.
Íbúð 201 er 104,6 fm. að meðtaldri 8,2 fm. geymslu, íbúðarrými eignar er 96,4 fm. og skiptist í anddyri, gang, rúmgott alrými sem telur eldhús, borðstofu og stofu þaðan sem útgengt er á svalir, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Aukin lofthæð er íbúðinni og geymsluloft sem ekki er inn í birtum fm. eignarinnar. Nánari lýsing: Anddyri: Fatahengi. Flísar á gólfi.
Gangur: Innbyggður skápur. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið og bjart rými með aukinni lofthæð. Filmuð innrétting með eyju, tengi fyrir uppþvottavél. Háfur er til og fylgir með. Flísar á gólfi.
Stofa: Skiptist í stofu og borðstofu. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með góði skápaplássi. Parket á gólfi.
Herbergi II: Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III: Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Filmuð innrétting. Nuddbaðkar með sturtu. Gólfsalerni. Veggflísar. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur. Góð þurrkaðstaða. Flísar á gólfi.
Geymsla: Rúmgóð 8,2 fm. sérgeymsla í kjallara.
Lóð: Góð aðkoma, upphitaðar hellur meðfram húsi og að inngang kjallara. Húsinu tilheyrir sameiginlegt svæði fyrir aftan hús með leiktækjum.
Íbúðin er mjög vel staðsett miðsvæðis í Borgarnesi þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri þ.m.t. grunnskóli, menntaskóli, sundlaug, íþróttahús, menntaskóli, matvörubúðir og heilsugæsla.
Nánari upplýsingar veita:Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 /
[email protected]Bergþóra Lárusdóttir, löggiltur fasteignasali / s.895 3868 /
[email protected]Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]