Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Kleppsvegur 58 , 104 Reykjavík (Vogar)
62.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
75 m2
62.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
13.900.000
Fasteignamat
15.750.000
Opið hús: 28. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Kleppsvegur 58, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

**Domusnova kynnir** Mjög góð og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á Kleppsvegi 58.
**Íbúðin er á 1.hæð, gengið upp um hálfa hæð***
Birt stærð
íbúðarinnar er 75,9fm. og þar af geymsla 4,9fm.í kjallara merkt íbúðinni.

Anddyri íbúðar er rúmgott með ljósum flísum á gólfum. 
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Stofan snýr til suðurs í sólríkan og friðsælan garð.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og snýr út að garði til suðurs.  Góður fataskápur í hjónaherbergi.  Útgengt úr hjónaherbergi á sólríkar suðursvalir.  
Herbergi #2 er gott barnaherbergi með parket á gólfi.
Eldhús er með góðri viðar innréttingu, litlum borðkróki og parketi á gólfi. Góður gluggi á eldhúsi.
Þvottahús innaf eldhúsi með glugga.
Baðherbergið er með baðkari. Flísalagt bæði gólf og veggir.
Geymsla er í kjallara með glugga.
Hjóla-og vagnageymsla rúmgóð í kjallara.
Næg bílastæði við húsið.

Helstu endurbætur undanfarin ár:
- Þak endurnýjað
- Gluggar og gler ásamt svalahurðum 
- Steining utanhúss endurnýjuð á öllu fjölbýlishúsinu.

Eignin er vel staðsett í rótgrónu hverfi þar sem Laugardalur og miðbær eru í göngufæri með fjölbreyttum útivistarmöguleikum.
Góðar samgöngur eru á svæðinu og greið leið bæði í miðbæinn og út á helstu stofnbrautir. 

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.