***DOMUSNOVA KYNNIR * NÝTT ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU***Til leigu 271 m² lager- og iðnaðarhúsnæði við Dofrahellu 7 í Hafnarfirði. Laust fljótlega.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu hússins er gólfflötur 233,6fm. og milligólf sem er til staðar er óskráð.Húsnæðið skiptist í einn stóran sal með einni
stórri innkeyrsluhurð (5 x 5 m.) með drifbúnaði. Kaffistofa, starfsmannaaðstaða og salerni innst í húsnæðinu að mestu fullfrágengið. Inngöngudyr eru í báðum endum á húsnæðinu.
Húsnæðið er fullfrágengið utan og innan.
Lofhæð í sal 6-7 m. Milliloft er um 37 m². Olíuskilja er til staðar.
Mögulegt að fá hillukerfi fyrir lagerhald í sal leigt með eigninni.
Leigusamningur er um húsnæðið í dag sem er að renna út
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.