Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Hraunteigur 15 , 105 Reykjavík (Austurbær)
59.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
64 m2
59.500.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1948
Brunabótamat
32.000.000
Fasteignamat
58.000.000

Domusnova og Vilborg kynna nýtt í einkasölu:
EINSTAKLEGA FALLEG OG MIKIÐ ENDURNÝJUÐ 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2.HÆÐ Í GÓÐU STEINHÚSI VIÐ HRAUNTEIG.

LAUS VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.
ÍBÚÐIN ER 64 FM, AÐ AUKI ER GEYMSLAN 5,5 FM, EÐA ALLS UM 70 FM.

Forstofa / hol er rúmgott og tengir aðrar vistarveru íbúðarinnar, parket á gólfi.  Tveir góðir geymsluskápar eru í holi.
Stofan er björt og falleg, upptekin loft og sérhönnuð lýsing. Hurð inn í stofu er upprunaleg og er einstaklega falleg með frönskum gluggum. Parket á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu, flísar á gólfi, vönduð ítölsk gaseldavél.  Þá fylgir AEG uppþvottavél.
Baðherbergi endurnýjað og endurhannað með náttúrustein á gólfi.  Stór flísalagður sturtuklefi,nett viðarinnrétting, upphengt salerni og flísar á veggjum.  Hiti er í baðgólfi og opnanlegt fag á glugga.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi, gengið út á  suðaustursvalir.
Þvottahús er sameiginlegt og er í kjallara.
Sér geymsla íbúðar er með glugga.  Hún er ekki skráð inn í stærð íbúðar og er 5,5 fm.

Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið framkvæmt:
  • Parket á gólfum er nýlegt.
  • Brunavarnir teknar í gegn í sameign.
  • Húsið viðgert og steinað að utan árið 2006.
  • Frárennsli og dren endurnýjað árið 2003.
  • Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð í íbúðinni.
  • Þakið var yfirfarið og málað 2024.
  • Árið 2015 var lagt nýtt gólfefni á hol, stofu og svefnherbergi.
  • Baðherbergi, eldhús o.fl. var endurnýjað 2007.
  • Skipt var um raflagnaefni og m.a. sett upp sérhönnuð lýsing í hluta íbúðarinnar.
Stór og falleg lóð með sameiginlegum sólpalli.
Veggfastur rafmagnshitari á svölum fylgir með.

Íbúðin er einstaklega björt og falleg í litlu fjölbýlishúsi við Hraunteiginn.  Hverfið er gróið þar sem Laugardalslaug, World Class og útivistarsvæði er í göngufæri en einnig er stutt í verslun og þjónustu. 
Þá er hún vel staðsett með tilliti til skóla og leikskóla.
Falleg íbúð sem vert er að skoða.


Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.