Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Tindaflöt 2 , 300 Akranes
63.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
100 m2
63.500.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2005
Brunabótamat
59.150.000
Fasteignamat
59.150.000

Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: 100,1 fm 4ra herb. íbúð á annarri hæð á Tindaflöt Stutt í skóla, leikskóla, íþróttir, hverfisbúð og síðast en ekki síst á golfvöllinn. ** LYKLAR Á SKRIFSTOFU** AFHENDING VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS**.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu með útgang út á svalir. Hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Baðherbergi, sér þvottahús inn af íbúðar. Geymsl, hjóla/vagna geymsla á jarðhæð.

Lýsing eignar:
Forstofa:  Flísar á gólfi, góður fataskápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp.
Svefnherbergi: Barnaherbergi með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með fallegri innréttingu. Baðkar með sturtu. Gólf og veggir flísalagt. 
Stofa: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: sem er búið að taka af stofunni.
Eldhús: með hvítmálaðri innréttingu. Búið að endurnýja borðplötu og útbúa "eldunareyju" með  keramiki helluborði ( 2021) .   
Dyr útá svalir úr eldhúsi. Svalagólf með timburflísum.
Þvottahús:  innan íbúðar, við hlið eldhúss, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, skúffur, hillur, skápur, vaskur.
Parket á svefnherbergjum, gangi, stofu, forstofu og eldhúsi (lagt 2021)
Sér geymsla í kjallara á Tindaflöt 4.  Sameignleg hjóla/vagnageymsla á 1.hæð.
4 rafhleðslustöðvar á bílaplani.
Eignin er vel staðsett, stutt í skóla, leikskóla, verslunarþjónustu, golfvöll og íþróttamiðstöð.

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.