Opið hús: 03. maí 2026 kl. 14:00 til 14:30.Opið hús: Bergþórugata 7, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 3. maí 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna einstaklega sjarmerandi, fallega og mikið endurnýjaða 2 herbergja hæð með sérinngangi í virðulegu þríbýlishúsi í hjarta miðborgarinnar.
Skipulag eignarinnar er eftirfarandi: Eldhús og stofa í opnu og björtu alrými. Svefnherbergi með frönskum svölum. Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla innan íbúðar. Fallegt útsýni úr íbúð til suðurs að Hallgrímskirkju og til norðurs að Esjunni.
Skv. HMS er íbúðin skráð 57,9 fm2 og eru allir þeir fermetrar innan íbúðar.
Húsið var reist árið 1923 og er því friðað vegna aldurs, sbr. 29.gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar.
Frábær staðsetning í 101 þar sem stutt er í allt það sem miðborgin býður upp á: Sundhöll Reykjavíkur, fjölbreytta verslun, veitingahús og menningu o.fl. Endurbætur síðustu ára:- Ný gólfefni, ásamt innihurðum.
- Eldhúsinnrétting ásamt tækjum.
- Baðherbergi allt endurnýjað.
- Alllar raflagnir endurnýjaðar ásamt rofum, tenglum og rafmagnstöflum í íbúð og sameign.
- Allir ofnar í íbúð endurnýjaðir.
- Gluggar og gler.
- Skólplagnir og dren.
- Lóð við hús endurnýjuð.
- Ruslatunnuskýli nýleg.
Lýsing eignar:- Sérinngangur komið er inn í forstofu með harðparketi.
- Stofa og eldhús eru í sameiginlegu björtu rými með tveimur frönskum gluggum. Eldhúsinnrétting með spanhelluborði, bakaraofni og innbyggðri uppþvottavél. Ísskápur fylgir með í kaupum. Harðparket á gólfi.
- Svefnherbergi er rúmgott með fjórföldum fataskáp og harðparketi á gólfi. Franskar svalir fyrir framan glugga.
- Baðherbergisgólf er flísalagt og veggir að hluta. Fín innrétting undir vaski, speglaskápur á vegg, walk inn sturta, handklæðaofn, upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
- Snyrtileg lóð með fallegum beðum meðfram húsi, malarborin lóð bakvið hús, sameiginlegur geymsluskúr.
ATH rými með húsgögnum í eru tölvuteiknuð af gervigreind, litur á þeim rýmur er ekki réttur hvorki á veggjum né gólfefnum.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.