Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Hamraborg 14 , 200 Kópavogur
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
122 m2
84.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1977
Brunabótamat
57.600.000
Fasteignamat
80.750.000

Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs og DOMUSNOVA kynna í hjarta Kópavogs:
Fallega 5 herbergja 122,3fm íbúð, sem er staðsett á jarðhæð sunnan megin en á annarri hæð norðan megin.
Svalir í vestur átt með fallegu útsýni í átt til sjávar.
Sameiginleg stæði í bílakjallara.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, stæði í bílageymslu og sameiginlegt þvottahús á hæðinni.
Mjög góð staðsetning, þar sem stutt er í helstu þjónustu s.s. verslanir, skóla og leikskóla.


Nánari lýsing.
Anddyri.
Samliggjandi rúmgóð stofa og borðstofa. Gluggar á tvo vegu. Útgengi á vestur svalir.
Eldhús með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Flísalagt á milli skápa og borðplötu. Helluborð, bakarofn í vinnuhæð og uppþvottavél.
Baðherbergi flísalagt um hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu. Speglaskápar. Handklæðaofn.
Svefnherbergishol með innbyggðum fataskápum.
Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
3 svefnherbergi með fataskápum og Parketi á gólfum.
Geymsla er inn í íbúðinni þar sem lagt er fyrir þvottavél og þurrkara. Epoxy á gólfi.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús með sameiginlegri þvottavél og þurrkara.
Eigninni fylgir stæði í bílageymslu.

Að sögn eiganda hefur húsið fengið gott viðhald síðustu ár. 
  • Ytra byrði hússins var yfirfarið, lagfært og málað árið 2018.
  • Sameign er snyrtileg með nýlegu teppi.
  • Neðstu tvær hæðir sameignar voru flísalagðar árið 2019 og gangurinn málaður áður en teppi voru endurnýjuð. 
  • Árið 2020 var skipt um allar útihurðir hjá íbúðum í stigangi og settar nýjar eldvarnarhurðir.
  • Rafmagnstafla fyrir 1. hæð var endurnýjuð á síðasta ári.
  • Fyrir nokkrum árum voru baðherbergi, eldhús og gólfefni á opna rýminu endurnýjuð
Frábær eign sem vert er að gefa gaum, miðsvæðis á Stór Reykjavíkursvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali/s. 891 8660/ [email protected]
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.