Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Hallveigartröð 2 , 320 Reykholt í Borgarfirði
Tilboð
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
116 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
63.650.000
Fasteignamat
41.200.000
Opið hús: 10. maí 2026 kl. 13:30 til 14:00.

Opið hús: Hallveigartröð 2, 320 Reykholt Borgarfirði. Eignin verður sýnd sunnudaginn 10. maí 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.

Domusnova Borgarnesi kynnir í sölu Hallveigartröð 2, 320 Reykholt. Fjölskylduvænt, fjögurra herbergja 116,4 fm. parhús á einni hæð. Húsið er einstaklega rúmgott og vel skipulagt, stór timburverönd með heitum potti.

** BÓKIÐ SKOÐUN hjá Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf. í síma 691-4591 eða [email protected] **

Hallveigartröð 2 er timburhús á einni hæð, byggt árið 2006. Húsið er parhús og er heildarstærð íbúðar 0102 skv. FMR er 116,4 fm., innan eignar er anddyri, alrými sem telur eldhús, borðstofu og stofu þaðan sem útgengt er á timburverönd, á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Aukin lofthæð er í öllum rýmum utan svefnherbergisgang þar sem er geymsloft. 
 
Nánari lýsing: 
Anddyri: Fataskápur. Flísar á gólfi. 
Alrými: Opið og bjart rými með aukinni lofthæð þar sem er eldhús, borðstofa og stofa. Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og veggofni, tengi fyrir uppþvottavél. Úr stofu er útgengt á timburverönd. Flísar á gólfi. 
Þvottahús: Vaskur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Lítið geymsluloft. Flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Geymsluloft. Flísar á gólfi. 
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Ljós innrétting með nægu skápaplássi. Baðkar og sturta. Flísalagt í hólf og gólf. 

Lóð/garður: Lóðin er 1368,0 fm. að stærð, malarplan framan við hús með tveimur bílastæðum. Timburverönd fyrir aftan hús með heitum potti. Grasflötur hlið hússins. 

Reykholt í Borgarfirði er fallegt og söguríkt byggðarlag sem nýtur vaxandi vinsælda sem búsetukostur. Svæðið er þekkt fyrir rólegt og fjölskylduvænt umhverfi þar sem náttúra, saga og nútímaleg þjónusta fara vel saman.


Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.