Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Barmahlíð 6 , 105 Reykjavík (Austurbær)
62.500.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
72 m2
62.500.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1946
Brunabótamat
36.000.000
Fasteignamat
61.800.000
Opið hús: 10. maí 2026 kl. 13:00 til 13:30.

Opið hús: Barmahlíð 6, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 10. maí 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Domusnova og Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs kynna nýtt á einkasölu:
FALLEG OG BJÖRT 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANG Í HLÍÐUNUM.
ÍBÚÐIN ER 72,5 FM Á VINSÆLUM STAÐ Í HJARTA REYKJAVÍKUR.
Skipulag: Forstofa, hol, tvö svefnherbergi, rúmgott eldhús, stofa/borðstofa og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Gengið er niður kjallaratröppur að inngangi íbúðar.
Forstofa er flísalögð með gólfhita.
Hol er með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Holið tengir saman vistarverur hússins.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi, björt með gluggum til suðurs.
Eldhús er mjög rúmgott með góðri innréttingu, parketlagt með glugga til suðurs.
Baðherbergi er með sturtuklefa, flísalagt með góðri innréttingu og handklæðaofni. Hiti í gólfi.
Geymsla er innan íbúðar með hillum og parketi á gólfi.
Þvottahús er í sameign þar sem hver íbúð er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginlegur geymsluskúr í garði. 
Stór gróinn suðurgarður.
Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni og Gísla Halldórssyni.

Upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / [email protected]

Að sögn seljenda hafa eftirfarandi endurbætur verið gerðar innan íbúðar:
2020: 
  • Ný innrétting á baði
2023:
  • Nýtt raflagnaefni í íbúð.
  • Sjónvarpslagnir faldar í vegg.
2025 :
  • Múrviðgerðir á vegg við sérinngang.
  • Nýtt blöndunartæki í baðherbergisvaski.

Um viðhald hússins að sögn seljenda: 
Þak endurnýjað árið 2019, en þá var skipt um þakjárn og þak pappa. Einnig þakrennur og snjóvarnir á þaki.
Skólplagnir fóðraðar 2019.
Gler í stofu og hjónaherbergi hefur verið endurnýjað af fyrri eigendum.

Um er að ræða skemmtilega og bjarta íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum.
Stutt í verslanir og þjónustu en Kringlan er í göngufæri sem og miðbærinn.
Leik- grunn- og menntaskólar í nágrenninu.
Frábær fyrstu kaup og góðir útleigumöguleikar. 


Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.