Domusnova og Vilborg kynna nýtt á einkasölu:4ra HERBERGJA SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR Í FJÖLSKYLDUVÆNU OG GRÓNU HVERFI VIÐ GRENIGRUND 6, KÓPAVOGI.Nánari lýsing:Sameiginlegur inngangur með 1.hæð, gengið upp teppalagðan stiga að íbúð á stigapall með útgengi á svalir.
Hol er rúmgott og tengir vistarverur íbúðar saman. Fatahengi í holi, parket á gólfi.
Eldhús var endurnýjað 2018. Hvít Ikea innrétting með góðum skápum. Innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð og span helluborð.
Stofa/borðstofa liggur saman í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú öll með plastparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp þaðan er útgengi á austur svalir.
Herbergi II er rúmgott.
Gluggar til austurs.
Herbergi III með gluggum til norðurs.
Baðherbergi var endurnýjað 2019, flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Sér geymsla íbúðar er í sameign í kjallara hússins.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara, gengið er í frá stigagangi á 1. hæð.Útgengt er frá þvottahúsi út á bílaplan norðan megin húss.
Bílskúr: 26,2 fm, gluggar á suðurhlið bílskúrs.
Sér bílastæði íbúðar framan við bílskúr. Auk þess eru sameiginleg bílastæði á lóð.
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt stað á húsi:- Þakið var tekið í gegn 2006 og var þá sett nýtt járn - unnið af fagaðila.
Núverandi eigendur hafa farið eftirtaldar endurbætur á eigninni að þeirra sögn:- Eldhús fært inn í stofurýmið. Nú er svefnherbergi þar sem áður var eldhús.
- Baðið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Sett upp sturta þar sem áður var baðkar og öll tæki endurnýjuð ásamt lögnum.
- Íbúðin parketlögð.
- Skipt um rafmagnstengla og slökkvara að mestu.
- Rafmagnstafla endurnýjuð.
- Bílskúrinn málaður að utan 2023.
- Stigagangur í sameign málaður 2019.
Staðsetning eignarinnar er á fjölskylduvænum og eftirsóknaverðum stað í Kópavogi. Um er að ræða afar veðursælan stað í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn með alla sína útivistarmöguleika.
Stutt er í Snælandsskóla, Álfhólsskóla, leikskóla og íþróttasvæði. Nánari upplýsingar veitir:Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.