Opið hús: 17. maí 2026 kl. 15:00 til 15:30.Opið hús: Norðurbakki 3, 220 Hafnarfjörður, bjalla 213. Eignin verður sýnd sunnudaginn 17. maí 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
DOMUSNOVA og Vera kynna fallega 102 m2 íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokuðum bílakjallara við Norðurbakka 3C 220 Hafnarfirði.
2 Rúmgóð svefnherbergi, þvottahús innan íbúðar, tvennar rúmgóðar svalir.Nánari upplýsingar veitir:
Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / [email protected]Nánari lýsing:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Með vandaðri innréttingu og hreinlætistækjum, innfeld uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofan er opin inn í eldhús að hluta. Parket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi: Með góðum fataskápum parketi á gólfi.
Herbergi: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, vönduð innrétting, walkin sturta, upphengt WC.
Þvottahús: Innangent úr baðherbergi með flísum á gólfi og vaski rennihurð milli rýma.
Bílakjallari: Sér merkt stæði í lokuðum bílakjallara.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign 6,8 m2.
Hjóla og vagnageymsla: Sameigninlegar í sameign.
Glæsileg eign á vinsælum stað við sjóinn þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.