Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Víðidalur 24 , 260 Njarðvík
92.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
139 m2
92.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
78.980.000
Fasteignamat
86.100.000

Hrannar Jónsson og Andri Hrafn Agnarsson, löggiltir fasteignasalar ásamt Domusnova fasteignasölu kynna:

Fallegt raðhús með tveimur stórum herbergjum og bílskúr á einni hæð í Njarðvík.

Um er að ræða 108,5 fm nýlegt raðhús með tveimur svefnherbergjum ásamt 21,5 fm innbyggðum bílskúr og geymsluskúr á lóð, óeinangraður 9,5 fm, samtals 139,5 fm.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Húsin voru byggð 2022 af byggingarfyrirtækinu Sparra ehf., með innréttingum, parketi og flísum frá HTH.

Innangengt er úr andyri íbúðar inn í bílskúrinn og er hann með máluðu gólfi, skolvask og rafdrifinni hurð.

Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagt andyri með stórum fataskáp. Á hægri hönd úr andyri er gengið inn í bílskúrinn. Bílskúrinn er með málað gólf, rafdrifna hurð og skolvask. Til vinstri úr andyri er gengið inn í annað svefnherbergið sem er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Gengið er af gangi inn í alrýmið þar sem eldhús/borðstofa/stofa koma saman í einu rými. Eldhúsið er mjög smekklegt á einum vegg með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp með fyrsti, bakaraofnum í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél. Mjög stór eyja er með góðu geymsluplássi, helluborði og barstólum fyrir þrjá stóla. Pláss er einnig fyrir gott borðstofuborð og sófa í stofu. Útgengt er á rúmgóða sólpall og sérafnotareit með grasi framan við pallinn. Góður geymsluskúr er framan við sólpallinn á grasinu. Búið er að leggja rafmagnsrör inn í skúrinn til að koma rafmagni en á eftir að draga í. Bílaplan er hellulagt og getur rúmað tvo bíla.

Virkilega falleg eign, vel staðsett þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttamannvirki. Einnig er náttúran allt í kring sem rammar hverfið fallega inn.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.