Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Andrésbrunnur 3 , 113 Reykjavík (Grafarholt)
70.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
94 m2
70.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2003
Brunabótamat
51.840.000
Fasteignamat
70.100.000
Opið hús: 25. maí 2026 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Andrésbrunnur 3, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 25. maí 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Hrannar Jónsson og Andri Hrafn Agnarsson, löggiltir fasteignasalar ásamt Domusnova fasteignasölu kynna:

Mikið endurnýjaða íbúð í lyftuhúsi ásamt góðri geymslu og stæði í bílageymslu.

Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með baðkari m/sturtu, sér þvottahúsi innan íbúðar, góðri geymslu á geymslugangi og stæði í bílageymslu á jarðhæð.

Búið er að endurnýja eldhús og heimilistæki, baðherbergi, fataskápa og gólfefni, á síðustu árum.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Eignin skiptist í 87 fm íbúð, 7,2 fm geymslu eða samtals 94,2 fm alls.

Til viðbótar er svo stæði í bílageymslu og aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Þvottahús er innaf forstofunni, flísalagt gólf og innréttingu, góðu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðstofan og stofan er í sameiginlegu rými og útgengt er á góðar suðursvalir. Eldhúsið er opið við alrýmið, með nýlegri hvítri innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, gott geymslurými í innréttingu. Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með fataskápum. Baðherbergið var endurnýjað, nýjar flísar, wc, innrétting og vaskur. Baðkar sem var notað áfram og hengi notað til að fara í sturtu. Gólfefni eru parket utan votrýma. Á geymslugangi, sem er eina hæð niður, er góð geymsla. Á jarðhæð við inngang er svo sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt stæði í bílageymslu.

Grafarholt er fjölskylduvænt og gróið hverfi, stutt í náttúruna með góðum gönguleiðum og útivistarsvæðum. Leik- og grunnskólar eru innan hverfis ásamt matvöruverslun, veitingastöðum, sundlaug, íþróttamannvirkjum, apóteki og fleiru. Aðra þjónustu má sækja í nágrannahverfin, Grafarvog og Árbæ. Hverfið er vel tengt við allar samgönguæðar, almenningssamgöngur og er lögregla með starfsstöð innan hverfis.


Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.