Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Þjóðbraut 5 , 300 Akranes
78.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
102 m2
78.500.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
73.780.000
Fasteignamat
69.600.000

Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir:  Þjóðbraut 5 "byggt 2023",102,8 fm 4raherb endaíbúð í  LYFTUBLOKK á 3ju hæð ásamt STÆÐI í bílakjallara. Stutt í verslun og þjónustu.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu með útgang út á svalir. Hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara Geymsla, hjóla/vagna geymsla á jarðhæð. Íbúðirnar eru fallegar og vel skipulagðar og er innanhús hönnun í höndum Rut Káradóttir

íbúð 
102,8 fm 4ra herbergja endaíbúð á 3 hæð gengið inní íbúð á göngusvölum.
Forstofa, parket á gólfi með góðum fataskáp
3 svefnherbergi, parket á gólfum og skápar í tveim.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluta af veggjum "walk in" sturta, innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi. 
Eldhús, borðstofa og stofa mynda eitt alrými, parket á gólfum og innrétting með eyju og dyr út á svalir.
Fljótandi parket á allri íbúðinni nema inná baðherbergi. 

Sér 13,8 fm geymsla í kjallara.
Stæði í bílakjallara B08

Þjóðbraut 5 - 300 Akranesi:
Fjölbýlishúsið að Þjóðbraut 5 er staðsett í glæsilegu íbúðarhverfi í uppbyggingu á Akranesi. Byggingin er 5 hæðir með 38 íbúðum. Eitt stiga- og lyftuhús er í byggingunni. Svalagangar tengjast saman í vinkil á 2.-5. hæð og er aðgengi að stigahúsi frá tveim áttum. Í kjallara hússins er sameiginleg bílageymsla með bílastæðum fyrir 26 bifreiðir og vagna- og hjólageymsla. Aðalinngangur er staðsettur á 1. hæð. 

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.