Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Þorsteinsgata 21 , 310 Borgarnes
56.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
3 herb.
94 m2
56.500.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1958
Brunabótamat
44.350.000
Fasteignamat
43.550.000
Opið hús: 31. maí 2026 kl. 14:00 til 14:30.

Opið hús: Þorsteinsgata 21, 310 Borgarnes. Eignin verður sýnd sunnudaginn 31. maí 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Domusnova Borgarnesi kynnir í einkasölu: Þorsteinsgötu 21, 310 Borgarnes. Fjölskylduvænt, fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð á skjólgóðum stað efst við Þorsteinsgötu í Borgarnesi. Frábæra staðsetning miðsvæðis í göngufæri við verslanir og helstu þjónustu.

Þorsteinsgata 21 er 94,2 fm. einbýlishús á einni hæð, byggt árið 1958 úr holstein, bílskúrsréttur á lóð. Innra skipulagi eignar hefur verið breytt frá því upprunalegu, m.a. fjarlægðir veggir og baðherbergi fært. Innan eignar er forstofa, eldhús, stofa, baðherbergi með þvottaðstöðu þaðan sem útgengt er í bakgarð, hol/gangur og þrjú herbergi. Lóðin er 725,0 fm., gróinn garður er kringum húsið, stór timburverönd með skjólvegg og malarplan framan við hús.

Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápur. Millihurð. Flísar á gólfi. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting með efri og neðri skápum með fibo plötum á milli, bakaraofn, helluborð og innbyggður ísskápur. Parket á gólfi. 
Stofa: Perket á gólfi.
Hol/gangur: Parket á gólfi.
Herbergi (þrjú): Tvö rúmgóð svefnherbergi og eitt minna. Parket á gólfum
Baðherbergi: Dökk innrétting með skúffum, handlaug og hvítri borðplötu. Sturta. Vegghengt salerni. Veggflísar. Flísar á gólfi. Góð þvottaaðstaða. Flísar á gólfi. Hurð út í bakgarð.

Á undanförnum árum hefur eignin verið endurnýjuð mikið, m.a. skipt um þak, glugga og gler, settur varmaskiptir, lagnir og rafmagn endurnýjað o.m.fl. Áhugasömum er bent á að senda á netfangið [email protected] og fá sent söluyfirlit eignar þar sem nánari lýsingu og upptalning á framkvæmdum er að finna.

Mjög vel staðsett einbýlishús miðsvæðis í Borgarnesi, þar sem grunnskóli, íþróttasvæði, sundlaug, Skallagrímsgarður, menntaskóli og verslanir er í göngufæri. Mikil veðursæld og fallegt umhverfi. 


Bóka skoðun og/eða nánari upplýsingar:
Sjöfn Hilmarsdóttir, lögfræðingur & löggiltur fasteignasali
Sími: 691-4591
Netfang:
[email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.