Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Austurbrún 4 , 104 Reykjavík (Vogar)
49.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
47 m2
49.800.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1961
Brunabótamat
24.500.000
Fasteignamat
47.150.000

Stefán og Domusnova kynna Austurbrún 4 . Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á 8 hæð, glæsilegt útsýni  Tvær lyftur eru í húsinu og voru þær báðar endurnýjaðar árið 2022.   

Nánari lýsing eignar:
Komið er inn í forstofu með skáp, geymsla á vinstri hönd..
Björt stofa með útgangi út á svalir með fallegu og miklu útsýni. 
Eldhús er með ljósri innréttingu, nýlega endurnýjað.
Svefnherbergi með góðum skáp, tengi fyrir þvottavél í fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkar með sturtuhengi..
Á jarðhæðinni er sameiginlegt þvottahús. 
Eldhús, gólfefni, fataskápur í herbergi og hurða að íbúð endurbætt 2023.

Um er að ræða  afar hentuga eign fyrir fyrstu kaupendur eða þá sem vilja minnka við sig. Staðsetningin er frábær þar sem stutt er í Laugardalinn, verslanir, skóla og leikskóla og stofnbrautir. Strætó biðstöð fyrir framan blokkina. Mjög gott aðgengi er að blokkinni ásamt nægum bílastæðum. Húsfélagsgjöld um 31 þúsund á mánuði.

Allar nánari upplýsingar vetir Stefán sími 896-9303. [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.