Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Kóngsbakki 6 , 109 Reykjavík
87.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
6 herb.
158 m2
87.900.000 Kr.
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1968
Brunabótamat
71.750.000
Fasteignamat
85.600.000
Opið hús: 01. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Kóngsbakki 6, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 1. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Bjalla merkt 301 V.

Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna fallega, bjarta og rúmgóða sex herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlsihúsi.  Eignin samanstendur af rúmgóðri stofu og borðstofu með útgengi út á suðursvalir, fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og þvottahúsi innan íbúðar. Tvær geymslur eru í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu.  Skv. HMS er eignin skráð 158,5 fm2, þar af er 15,8fm2 geymsla. 

Mjög falleg og vel skipulögð fjölskyldueign í húsi sem hlotið hefur gott viðhald í gegnum árin. Góð staðsetning þar sem stutt er út á helstu stofnbrautir og í alla helstu þjónustu s.s skóla, leikskóla, verlsanir og aðra þjónustu. 

Helstu framkvæmdir við húsið á undanförnum árum: 
  • 2020-2021 Þak endurnýjað, skipt um pappa, járn og timbur sem þörf var á. 
  • 2020-2024 Hluti af gluggum endurnýjaðir.
  • 2022-2024 Húsið múrviðgert og málað.
  • 2022-2024 Gaflar klæddir ásamt austurhlið hússins.
  • 2022-2024 Skipt um timburhandrið á svölum og svalagólf viðgerð og máluð.
  • 2024 Skipt um hluta af skólplögnum í kjallara stigagangs nr. 6.
  • Gler hefur verið endurnýjað í flestum gluggum innan íbúðar.

Helstu framkvæmdir innan íbúðar að sögn seljenda:
  • 2024 Skipt um gólfefni á alrými og herbergjum. 
  • 2025 Sett upp þvottahúsinnrétting ásamt rafmagni í sértöflu fyrir þvottavél og þurrkara. 
  • 2026 Skipt um blöndunartæki í vaski á stærra baðherbergi. 
  • 2026 Skipt um innréttingu á gestasalerni. 
  • 2026 Skipt um krana undir báðum vöskum á baðherbergjum. 

Lýsing eignar:
Mjög snyrtileg sameign. 
Forstofa með góðum fataskáp með rennihurðum og flísum á gólfi.
Gestasalerni er inn af forstofu með nýlegri innréttingu, vaski og salerni, flísar á gólfi og málaðir veggir. 
Borðstofa og stofa eru samliggjandi í opnu rými, útgengt er á svalir úr borðstofu. Harðparket á gólfi. 
Eldhúsið er stórt og bjart  með U innréttingu með miklu skápaplássi og hólfi fyrir amerískan ísskáp, helluborð með nýlegum háf yfir, ofn í vinnuhæð, góður borðkrókur með fallegum gólfsíðum glugga, flísar á gólfi. 
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi er á vinstri hönd þegar komið er inn úr forstofu. 
Svefnherbergisgangur er með harðparketi á gólfi, þaðan er gengið inn í 4 herbergi, baðherbergi og þvottahús. 
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp með rennihurðum og fallegum gólfsíðum glugga, harðparket á gólfi. 
Barnaherbergi 2: Harðparket á gólfi, laus fataskápur. 
Barnaherbergi 3: Harðparket á gólfi, laus fataskápur. 
Barnaherbergi 4: Harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting með niðurfelldum vaski, rúmgóðir háskápar á heilum vegg, flísalagðir veggir að hluta. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. 
Þvottahús: Nýleg snyrtileg innrétting, með góðu skápaplássi, flísar á gólfi. 
Svalir: Fínar svalir sem snúa ti suðurrs.
Geymsla: Í sameign er mjög rúmgóð, tæplega 16 fm geymsla auk ca. 6 fm geymslu sem ekki er skráð inn í fermetratölu eignarinnar. 
Lóð og garður:  Snyrtileg lóð og sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn. 
Við útidyr er sérinngangur í sameiginlega hjóla og vagnageymsla. 


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.