Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Minna-mosfell , 805 Selfoss
24.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
46 m2
24.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1988
Brunabótamat
26.100.000
Fasteignamat
23.850.000

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali, kynna:
Í einkasölu:


Skemmtilegt sumarhús á  7.300 fm eignarlóð við Mosfell í Grímsnesi.
Húsð er byggt úr timbri árið 1988 og er járn á þaki
Að innan telur eignin :
Forstofu með flísum á gólfi
Hol/gang, með plastparketi á gólfum
Tvö svefnherbergi, fataskápur er í stærra herberginu, plastparket er á gólfum
Salerni, með handlaug og WC.
Eldhúskrók, eldavél og bakarofn eru með gasi, plastparket er á gólfum
Stofu/borðstofu, plastparket er á gólfum,  útgengt á verönd, undir verönd er ágætis geymslurými.
Svefnloft er yfir svefnherbergjum.
Allir veggir eru panilklæddir.

Á lóð er lítill geymsluskúr, sem og inngrafin geymsla sem áður hýsti ljósavél

Hér er um virkilega skemmtilega eign að ræða fyrir þá sem vilja sælureit í sveitinni, en samt steinsnar frá hesltu þjónustu. Mosfell er mitt á milli byggðarkjarnanna á Borg, Laugarvatns, Laugaráss og Reykholts.

Nánari upplýsingar veitir:

Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.