***DOMUSNOVA KYNNIR * NÝTT 30,7FM. ENDA GEYMSLUBIL Á GÓÐUM STAÐ Í HAFNARFIRÐI***Geymslubil (endabil) við
Álhellu 26C bil merkt
02-0138.
Stærð samkvæmt þjóðskrá Íslands
30,7 m2.Innkeyrsluhurðin er
2,6 m á hæð og
breiddin er 2,5 m og er
gönguhurð í henni.
Lofthæð er
3,2 m við útvegg og við mæni
4,3 m. Eignin ert byggð úr límtrésrömmum og sjálfberandi steinullareiningum, harðpressuð 100mm steinull sem millilag. Þak einingar eru með 150mm harðpressaðri steinull sem millilag.
Gólf með vélslípaðri gólfplötu ( máluð ) með niðurfalli. Vaskur með heitu og köldu vatni.
Geymslubilið getur verið
laust til afhendingar við kaupsamning Hefðbundin ofnhitun og góð lýsing í loftum.
Rafmagnstafla með
3ja fasa tengingu. Rafmagn í bílskúrshurðaopnara.
Bílastæði eru sameiginleg á lóð .
Lóð er malbikuð og svæðið er afgirt. Sameiginleg salerni eru við enda geymslunar.
Ekki er vsk kvöð á geymslubilunum og mun lóðin verða afgirt.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.