Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Arnarsmári 8 , 201 Kópavogur
74.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
89 m2
74.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1994
Brunabótamat
61.200.000
Fasteignamat
69.250.000
Opið hús: 08. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Arnarsmári 8, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna bjarta, rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja endaíbúð á 1. hæð með suðvestur svölum, á eftirsóttum stað í Smárahverfi Kópavogs. 
Skv. HMS er eignin skráð 89 fm2 að auki er 5,5 fm geymsla í kjallara hússins sem ekki er skráð inn í fermetratölu eignarinnar. Eignin skiptist í: Forstofu, gang, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og geymslu í sameign. 


Frábær staðseting í litlu sex íbúða fjölbýlishúsi í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Smáralind og Smáratorg eru í göngufæri, ásamt heilsugæslu, líkamsræktarstöð, leikskólum, skóla, íþróttahúsi, fallegar göngu og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni. 

Lýsing eignar:
Forstofa: Parket á gólfi fataskápur. Innangengt er forstofu í þvottahús.
Eldhús: Opið að hluta inn í borðstofu og stofu. Rúmgóð eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum. Flísar eru á milli efri og neðri skápa, flísalagt gólf. Þvottahús er inn af eldhúsi. 
Stofa:  Björt stofa með gluggum á tvo vegu, útgengt á suðvestur svalir. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með stórum fataskáp. Parket á gólfi. 
Herbergi 2: Rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með efri og neðri skápum, walk inn sturta, salerni, gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahús: Flísalagt gólf, borðplata með skáp undir, einnig er skápur á vegg, vaskur, í hinum enda rýmisins er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hægt er að ganga inn í þvottahús frá forstofu og eldhúsi.
Svalir: Fínar svalir sem snúa til suðvesturs með glæsilegu útsýni. 
Geymsla: Sérgeymsla, Ca. 5 fm geymsla sem ekki er skráð i fermetratölu eignarinnar er í staðsett í kjallara. 
Hjóla og vagnageymsla er í sameign. 


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.