Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Skólatröð 3 , 200 Kópavogur
132.500.000 Kr.
Raðhús
8 herb.
236 m2
132.500.000 Kr.
Stofur
3
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1957
Brunabótamat
103.200.000
Fasteignamat
129.950.000

Domusnova og Vera kynna spennandi tækifæri:
Tæplega 240 m² raðhús ásamt bílskúr og aukaíbúð í kjallara við Skólatröð 3 í 200 Kópavogi.
Eignin skiptist í 196 m² íbúðarrými og 41 m² bílskúr.
Í kjallara er 2ja herbergja aukaíbúð með sér inngangi — tilvalin til útleigu.


Hér er á ferðinni rúmgott fjölskylduheimili með 6 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum á grónum og eftirsóttum stað. Þó eignin sé að hluta til upprunaleg og kalli á endurbætur felast í því miklir möguleikar, hér gefst tækifæri til að móta heimili að eigin höfði.

Einstök staðsetning — allt í göngufæri.
Staðsetningin er sérlega barnvæn og þægileg fyrir fjölskyldufólk. Bæði leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri og börn þurfa ekki að fara yfir götu á leið í skólann. Þá er örstutt í framhaldsskóla, Menntaskólann í Kópavogi, sem er sömuleiðis í göngufæri. Stutt er í alla helstu þjónustu og góðar almenningssamgöngur.

Eignin er laus við kaupsamning.


ALLARU UPPLÝSINGAR
Vera Sigurðardóttir lgf. í síma: 8661110 eða netfang: [email protected]



Endurbætur
2025: Skólp fóðrað út í götu. Ný stétt og innkeyrsla.
Innan við 10 ára: Þakjárn endurnýjað.

Herbergjaskipan
Hæð 1: Forstofa. Eldhús/stofa/borðstofa og sólstofa með útgengi út í garð.
Hæð 2: Hjónaherbergi með útgengi út á svalir, 3 barnaherbergi og baðherbergi.
Kjallari: 2ja herbergja aukaíbúð með sér inngangi og salerni.
Bílskúr: 41 m².

Fasteignamat næsta árs 134.800.000 kr.

ALLARU UPPLÝSINGAR
Vera Sigurðardóttir lgf. í síma: 8661110 eða netfang: [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.