Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Dalbraut 4 , 300 Akranes
90.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
123 m2
90.000.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
95.810.000
Fasteignamat
76.050.000

Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Dalbraut 4 nýlega 3ja. herb. 123.4 fm íbúð á 2.hæð með yfirbyggðum suðursvölum, LYFTUBLOKK og STÆÐI í bílgeymslu.

SKIPTI MÖGULEG Á LITLU RAÐ/PAR/EINBÝLISHÚSI.


Eignin skiptist anddyri eldhús og stofu. 2 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og þvottahús. 2 geymslur sem og hjóla/vagna geymsla á jarðhæð. Stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:
Gengið úr lyftu húsi í gegnum sameiginlegan garð íbúa sem er á þaki 1. hæðar. 

Fortofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda eitt stórt alrými 
Eldhús með eyju, fallegar innréttingar frá GKS. span helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, Útgengt út á suður svalir með svalalokun.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Flíslagt í hólf og með fallegri innréttingu og "walk in" sturtu.
Þvottaherbergi innaf eldhúsi, flísar á gólfi og góð innrétting með vélum í vinnuhæð. 
Fljótandi parket á allri íbúðinni nema baðherbergi og þvottahúsi. 
Geymslur: Það eru 2 geymslur sem fylgja þessari eign, 10,4 fm og 6,3 fm.

Bílageymsla: Stæði í bílageymslu og er komið tengi fyrir rafmagnsbíl sem fylgir                                                                
Dalbraut 4 er 5 hæða hús með 26 íbúðu. Í kjallara er  bílageymsla með bílastæðum fyrir 26 bifreiðar. Í kjallara eru einnig geymslur fyrir íbúðir sem og reiðhjóla- og vagnageymsla. Innangengt er fyrir íbúa að Dalbraut 4 úr sameign inn í  þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara.
Burðarvirki hússins er forsteyptar einningar frá Smellinn. Húsið er einangrað að utan með steyptri veðurkápu. Innbyggð vélræn loftræsting er í öllum íbúðum þar sem fersklofti verður blásið inn á móti lofti sem dregið er út úr íbúðum. 

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.