Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Lautasmári 31 , 201 Kópavogur
67.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
83 m2
67.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1993
Brunabótamat
49.850.000
Fasteignamat
67.150.000

***DOMUSNOVA KYNNIR * 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í LITLU FJÖLBÝLI***
Mjög vel um gengin og björt þriggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í snyrtilegu sex íbúða fjölbýli við Lautasmára 31 í Kópavogi.  Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum.  Þvottahús innan íbúðar.  Suðursvalir.  Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
***LAUS VIÐ KAUPSAMNING***

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð meðö stórum fataskáp
Eldhús með góðum borðkrók við glugga.   Snyrtileg vel um gengin innrétting með góðu skápaplássi, gluggi til suðurs, dúkur á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með gluggum til suðurs.  Útgengt á sólríkar suðursvalir.  
Hjónaherbergi rúmgott með vönduðum stórum fataskáp sem nær til lofts. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi með nýlegum fataskáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu og baðkari. Flísar á gólfi og veggjum.  
Þvottahús er innan íbúðar innaf eldhúsi með skolvask.  
Sérgeymsla með glugga í kjallara.
Vönduð sameign með sameiginlegri hjólageymslu.
Mjög vel um gengin íbúð sem snýr til suðurs.  Sameign mjög snyrtileg.
Stutt er í verslun og þjónustu sem er í göngufjarlægð. Sameiginleg bílastæði við húsið. Stutt í leikskóla, grunnskól og íþrótta/líkamsræktar aðstöðu. Smáralind er hinu megin við götuna og Smáratorg verslunarkjarni þar er Bónus, apótek og heilsugæsla.

Endurbætur:
- skipt um þakjárn á öllu fjölbýlishúsinu árið 2021
- fjölbýlishúsið málað utandyra árið 2021

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.