Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Kleppsvegur 44 , 105 Reykjavík (Austurbær)
57.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
63 m2
57.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1963
Brunabótamat
35.700.000
Fasteignamat
51.250.000
Opið hús: 24. júní 2026 kl. 17:15 til 17:45.

Opið hús: Kleppsvegur 44, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 24. júní 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Kleppsveg 44. Íbúðin snýr í suður og hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum s.s. parket, innrétting á baði (2020) og eldhúsinnrétting (2015). Frábær eign til fyrstu kaupa. Vinsæl staðetning stutt í þjónustu, afþreyingu og stofnleiðir.

íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu hvaðan er útgengt á svalir, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús og sérgeymsla eru sameign auk vagna- og hjólageymslu. Eignin er skráð 63,0 fm þar af 3,3 fm geymsla. Geislahiti er í íbúðinni.

Nánari lýsing: 
Stofan er rúmgóð og björt með útgengi á svalir til suðurs, opið er inní eldhús úr stofu, parket er á gólfi. Gluggar eru nýlegir (2015).
Eldhúsið er með hvítri innréttingu frá HTH, parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt að hluta, baðkar með sturtu aðstöðu, flotað gólf.
Svefnherbergi rúmgott með góðum skápum, parket á gólfi.
Forstofa/hol er með nýlegum skáp, parket á gólfi.
Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús (hver með sína vél) og hjóla- og vagnageymsla, einnig er í kjallara sérgeymsla. Stór og góður garður sem snýr í suður er  sameiginlegur með öðrum íbúum.

Viðhald síðustu ára samkvæmt upplýsingum fyrri eiganda: 
- 2013 Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll voru endurnýjuð.
- 2015 HTH innrétting í eldhúsi, fataskápar í svefnherbergi og forstofu.
- 2015 Viðhald og endurbætur utandyra: húsið málað, nýir gluggar að hluta, steypuviðgerðir og gert við rennur og niðurföll.
- 2020 Ný innrétting á baði og nýtt klósett.
- 2022 Stofnlagnir í kjallara endurnýjaðar.
- 2023  hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla á bílastæði.

Frábær staðsetning miðsvæðis í borginni, stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði Laugardalsins.  Gönguleiðir í Laugardalnum og á Laugarnestanganum eru innan seilingar og einnig er stutt í verslanir og þjónustu. 


Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.