Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Fallegt og vel skipulagt raðhús alls 173,9 fm ásamt innbyggðum 36,5 fm bílskúr. Í húsinu eru 4 svefnherbergi og möguleiki á því fimmta.Falleg eign í góðu rólegu hverfi staðsett innst í botnlangagötu stutt frá golfvelli og fallegum gönguleiðum. Á efsta palli: Eru þrjú svefnherbergi ásamt endurnýjuðu baðherbergi. Baðherbergi flísalagt, með góðri innréttingu og "walk in" sturtu. Úr hjónaherbergi er gengið út á suðursvalir.
Á miðpalli: Er flísalögð forstofa svo er komið í hol sem er opið í alrými sem saman stendur af eldhúsi og rúmgóðri stofu, upptekin loft. Úr eldhúsi er gengið í bakgarð þar sem er c.a. 115 fm sólpallur með "útieldhúsi" og heitum potti.
Á neðri palli: svefnherbergi (möguleiki að breyta í sjónvarpshol). Þvottahús með innréttingu og vélum í vinnuhæð, dyr út. Bílskúr skipt í þrjú rými, geymsla, snyrting og rúmgott svefnherbergi. Búið að innrétta í bílskúr rúmgott svefnherbergi með stórum glugga. snyrting með klósetti, innréttingi og möguleiki að setja sturtu, vinylparket á gólfum. þaðan er gengið inní geymslu með bílskúrshurð.
Endurbætur :Herbergi gólfefni og snyrting í bílskúr 2021
Parket 2021.
Innrétting í þvottahúsið 2021
Baðherbergið á efstapalli 2022
Gler og gluggar á efstapalli 2023
Sólpallur fyrir aftan hús sumarið 2024.
Steypt bílastæði og sólpallur að framan 2025
Eldhúsinnrétting sprautuð og ný borðplata og nýtt helluborð, aðalrými hússins málað 2026
stofugluggi, ný útidyrahurð (aðalinngangur) 2026
Eldhúsinnrétting, neysluvatnslagnir og innihurðir endurnýjað af fyrri eiganda.
Um er að ræða mjög fallegt og vandað hús á góðum stað.Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.