Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Mjög svo fallega og 4.herb. 156 fm sérhæð á 2.hæð í góðu 2-býli að meðtöldum 24.5 fm bílskúr. Sérinngangur á jarðhæð möguleiki að leigja út stúdioíbúð. En nýtist í dag sem rúmgott þvottahús og góð geymsla. Sólpallur sem snýr í suður. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu. Hjónaherbergi og 2 góð barnaherbergi. Sér þvottahús og geymsla í kjallaraLýsing eignar: tröppur að íbúð.
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápar.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi II: Rúmgott með parketi á gólfi
Svefnherbergi III: Svefnherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtu klefa. Flísar á gólfi og veggjum. Gluggi á baðherbergi.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa sem og borðstofa með parket á gólfi og útgang út á suður sólpall með heitum potti
Eldhús: Dökk JKE innrétting endurnýjuð 2025, tengi fyrir uppþvottavél, vinylflísar á gólfi. Úr eldhúsi er gengið niður úr sameiginlegu stigahúsi með neðri hæð í sérherbergi og þvottahús.
Einnig er sérinngangur jarðhæð í þetta rými. Ýmsir möguleikar með þessi herbergi.
Kjallari 28,9 fm. Stigi niður frá eldhúsi málað gólf, sameiginlegt. Sameiginleg lítil kyndigeymsla hjá stiga.
Þvottahús flísalagt gólf með góðri innréttingu. Gestawc flísa á gólfi í þvottahúsi. Vinnuherbergi/geymsla innaf þvottahúsi, parket/flísar, inngangur úr austri með sérinngang.
Bílskúr 24,5fm. Einangraður að hluta, hiti, rafmagn, lítil hurð, ómálað gólf, hurðaropnari, hillur, nær húsi).járn á þaki endurnýjað í kringum 2000
ANNAÐ: Nýlegt neysluvatn á baðherbergi og í eldhúsi. Einangrað geymsluloft. Endurnýjaðir ofnar og lagnir að mestu Suðurhlið klædd.
Í heild afar snyrtileg íbúð miðsvæðis á Akranesi
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.