Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:Í einkasölu :Virkilega fallegar og skemmtilegar sumarhúsalóðir úr landi Miðengi í Grímsnesi.
Lóðirnar eru allar mjög birkivaxnar og mikið landslag í hverri lóð með dölum, hólum og hæðum.
Lóðirnar eru staðsettar fjarri þjóðvegi og er því mikil kyrrð á svæðinu.
Rafmagns símahlið er til þess að komast inn á svæðið.
Einungis klukkustundar akstur er frá Reykjavík að Miðengi.
Lóðirnar eru að stærðinni frá 5.611 fm til 11.350 fm og er nýtingarhlutfall 0,03.
Byggja má allt að 40 fm aukahús á hverri lóð.
Landið stendur u.þ.b 100 metra yfir sjávarmáli og er jarðvegur gróft gróið hraun.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson lögmaður og löggiltur fasteignasali í S:
662-4422 og eða
[email protected]