Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala, kynna:
144,1 fm sumarhús, fallegt útsýni, vel búið heilsárshús, rétt við Reykholt í Bláskógarbyggð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!
Húsið samanstendur af tveimur húsum, alls eru 3 svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær stofur og eldhús ásamt góðri verönd með heitum potti.
Möguleg skipti á dýrari eða ódýrari eignum, hafið samband við fasteignasala.
Stærra hús:
Rúmgóð forstofa með fatahengi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum.
Baðherbergið er með wc, vask, skápaeiningu, sturtuklefa, þvottavél og þurrkara.
Eldhúsið er með langri innréttingu á einum vegg, efri og neðri skápar, góðu bekkjarplássi, uppþvottavél, helluborði, bakaraofni og stórum tvíbreiðum ískáp. Einnig er góð eyja með vinnuplássi og geymsluhillum.
Í alrýminu er svo matarborð með 6 stólum, sófasett, 3 stakir hægindastólar ásamt sófaborðum og skrautmunum.
Húsið er með hvíttuðum við, hvítar hurðir og timburgólfi.
Verönd er framan við húsið, heitur pottur með skjólveggjum, eldstæði og útihúsgögn. Tengir veröndin húsin saman.
Minna hús:
Rúmgóð björt stofa með stórum gluggum og hurð út á veröndina.
Svefnherbergið er rúmgott, tvíbreitt rúm og smá eldunaraðstaða með ískáp.
Baðherbergið er með wc, vask og sturtuklefa.
Húsið er panelklætt með timburgólfum.
Geymsluhús er óskráð og ekki inni í skráðri fermetratölu, um 15 fm.
Lóðin er rúmgóð, móar og ágætis bílastæði.
Allt innbú sem sýnt er með fylgir með í kaupunum.
Húsið stendur á 4.900 fm leigulóð, lóðarleigusamningur gildir til 2031. Núverandi árgjald leigu er u.þ.b. 89.000 kr. skv. eiganda.
Húsið er kynnt með rafmagni, tveir hitakútar eru til staðar, einn í hvoru húsi og heiti potturinn er rafmagnspottur.
Skv. eiganda er rafmagn í fullri notkun og útleigu húss um 50.000 kr á mánuði.