Hallskot , 861 Hvolsvöllur
49.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
71 m2
49.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
40.100.000
Fasteignamat
30.350.000

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:

Sumar/heilsárshús í landi Hallskots í Fljótshlíð
Húsið er byggt úr timbri á steypta sökkla og plötu og með gólfhita.
Húsið er klætt að utan með lerki.
Að innan telur húsið :
Forstofu með flísum á gólfi
Úr forstofu er stigi uppá efri hæð, þar sem er setustofa / vinnuaðstaða
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, ásamt baðherbegi og eldhúsi og stofu.
Fallegt parket er á alrými og herbergjum. Kamína er í stofu
Baðherbegi er með flísum á gólfi, handklæðaofni, upphengdu WC og sturtuklefa. Hurð er af baðherbergi út á verönd með heitum potti.
Eldhús og stofa eru í alrými og er innrétting með hvítri fulninga innréttingu, hurð er úr alrými út á verönd
Þvottahús og gufubða eru í sérhúsi á verönd.
Einnig er búið að byggja aukahús / geymslu sem er ríflega 15 fm að stærð og er búið að einangra og plasta það hús.
Stór verönd með heitum potti og útisturtu er við húsið.
Varmadæla, loft í loft og einnig er rafmagns túba.
 Mikið er búið að gróðursetja á lóðinni og er hún því mjög skjólgóð.
Við hlið lóðarinnar rennur lítil á með fallegum fossi, um er því að ræða frábær stað til slökunar

Húsið stendur á leigulóð, 3200 m2, 50 ára samningur frá 2004. Vísitölubundin lóðarleiga: 72.571 árið 2023
Ársgjald félags sumarhúsaeiganda á svæðinu 30.000 sem fer í rekstur félagsins, vatnsveitu, snjómokstur og fl. Vatnsból tilheyrir félaginu

Nánari upplýsingar veita:

Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.